Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Qupperneq 16

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Qupperneq 16
16 HARALD L. TVETERÁS það þá úr lífsreynslu minni, sem verður mér að yrkisefni? Það spannar yfir vítt svið. Sumpart hef ég ort um það, sem ég hef aðeins séð bregða fyrir í huga mér á háleitustu stundum mínum heillandi og mikilfeng- legt. Eg hef ort um það, sem segja má að standi ofar daglegu lífi mínu, ég hef ort um það til að setja mér það skýrt og eftirminnilega fyrir sjónir. En mér hefur líka orðið hið gagnstæða að yrkisefni, ég hefort um það, sem við nánari könnun reynist sori og botnfall í eigin skaphöfn. I slíku tilviki hef ég ort mér til andlegrar hressingar, og mér hefur fundizt ég koma úr því baði hreinni, heilli og frjálsari. Já, herrar mínir [í þá daga voru engir kvenstúdentar], ekkert skáld getur gert sér fulla grein fyrir því, að hve miklu leyti það hefur sótt fyrirmyndir sínar í eigin barm að minnsta kosti af og til. Og hver er sá á meðal vor, sem oft og tíðum kannast ekki við í sjálfúm sér andstæður orðs og æðis, viljans og skyldunnar eða yfirleitt milli lífs og lærdóms. Og hver er sá á meðal vor, sem hefur ekki á stundum verið sjálfum sér nógur og þá í eigingirni sinni blekkt sjálfan sig og fegrað þetta samband bæði í eigin augum og annarra?“ Það eru þrjú atriði, sem vert er að leggja áherzlu á. I fyrsta lagi, að Henrik Ibsen leitaði og fann oft í sjálfúm sér fyrirmynd persóna sinna, í öðru lagi, að hann notaði til persónusköpunar það, sem hann fann neikvæðast í sjálfúm sér, og hlííði sér ekki. Og svo í þriðja lagi nýjungin í skáldskap hans, það að sjá. Það leið langur tími, áður en þessi skilningur væri viðtekinn sem vert var af Ibsens sérfræðingum og í leikhúsunum. Sumir munu heldur aldrei koma auga á þetta, því að þeir eru þannig gerðir, þeir skynja ekki umheiminn á sjónrænan hátt. Fyrir höfund sjónleiks, verks, sem er samið til að sýna á sviði, er það vitaskuld meginatriði í stóru sem smáu, að það sjáist ljóslifandi, sem í textanum felst. Sama á við önnur skáld, hvort sem þau skrifa í lausu eða bundnu máli. Það er engin tilviljun, að svo mörg ljóðskáld hefja feril sinn sem listmálarar eða teiknarar, eins og Henrik Ibsen. Ég nefni hér aðeins Henrik Wergeland. Á hinn bóginn eru margir listmálarar svo snjallir rithöfundar, að þeir eins og vega salt milli tveggja listgreina, og get ég þar tekið úr norskri listasögu þá Christian Krohg og Christian Skredsvig. Hægt væri að nefna miklu ileiri. Um Henrik Ibsen vitum við, að hann hafði frábæra sjón. Hann gat lýst hlutum, sem hann hafði séð mörgum árum áður. Einu sinni í Róm hitti hann ungan norskan rithöfund, sem kvartaði yfir lélegu húsnæði, sem hann bjó í. Ibsen spurði hluttekningarfullur, hvernig herbergi hans liti út, hvernig veggfóðrið væri á litinn. Nei, ungi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.