Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 28
28
LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON
Finnbogi Bemódusson skrifar í dagbók sína 17. okt. 1955.
Margt hefur Finnbogi skrifað annað en dagbækurnar. Árið 1969 kom
út eftir hann bókin Sögur og sagnir úr Bolungarvík. Ekki hafði Finn-
bogi skráð þær með útgáfu í huga, þótt svo æxlaðist og nánast fyrir
tilviljun. Bók hans ber með sér næmi á frásagnarefni og góð tök á að
fara liðlega með það. Orðafar hans og stíll vitnar um, að málkennd
alþýðu lætur enn ekki að sér hæða.
II
Dagbækur Finnboga eru 58 talsins, þar af20 í foliobroti, en hinar eru
ýmist fjórblöðungar eða áttblöðungar. Að blaðsíðutali eru þær um
16400, þar af rösklega 5000 heilsíður. Vafalaust er dagbókasafn hans
með því stærsta, sem til er hérlendis, þótt vitað sé a. m. k. um eitt safn,
sem nær yfir lengri tíma. Engan sjómann veit ég hafa skráð dagbækur
jafnlengi. En blaðsíðufjöldinn segir ekki alla söguna, heldur öllu frem-
ur hvað skráð hefur verið.
Finnbogi var svo vinsamlegur að leyfa mér afnot dagbókanna í
sambandi við söfnun mína til íslenzkra sjávarhátta. Dvaldi ég hjá
honumíþví skyni 12.-30. september 1967 og varð margs vísari. í fyrsta
lagi kynntist ég höfundinum, ogjafnframt fræddist ég töluvert um sögu