Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Qupperneq 30
30
LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON
í þá nálega Qóra áratugi, sem Finnbogi var sjómaður, má lesa í
dagbókum hans áþekkt því, sem hér fer á eftir:
„21. marz 1938. - Fórum á sjó kl. 4 í nótt og lögðum um Hlíðar eftir
Tám og Hnjám 90 lóðir. Lágum yflr í 3 tíma. Logn var, meðan við
fórum út og lögðum, en allhvass suðaustan og bylur á meðan við
drógum, en hægði, er við vorum á landleið. Komum í land kl. 7. Vorum
búnir kl. 8 og komnir heim. Lítið fiskirí hjá okkur í dag, 4000 pd (hæst
9500 pd). Ég fór að sofa kl. 10 í kvöld.“
Tvisvar hefur Finnbogi verið að heiman við störf. Veturinn 1924 var
hann á vertíð í Vestmannaeyjum, og geymir dagbók hans margar
skemmtilegar minningar frá þeim tíma. Þær hefjast með dvöl hans í
Reykjavík dagana 15.-22. janúar, en þangað hafði hann ekki komið
fyrr. Hann lýsir kynnisferð sinni um bæinn, húsum og söfnum, sem
hann skoðar. Olympíunefnd knattspyrnumanna stóð um þetta leyti
fyrir leiksýningum á Skuggasveini. Þangað fór Finnbogi 18. jan.:
„Var leikið allvel afsumum, einkum var Gudda vel tekin. Hana lék
Tryggvi Magnússon. Asta var líka mjög vel leikin, hana lék Anna
Ivarsdóttir, ung kona, gift fiðluleikara Þórarni Guðmundssyni hér í
bænum. Hún var forkunnar falleg á leiksviði, líktist meir engli en
mennskri konu, og var gervi hennar mikil snilld. Margréti lék Rósa
Ivars, mágkona hennar, mjög vel, hún var líka mjög falleg. Haraldur
var allvel leikinn, hann lék Stefán Þorvarðarson, mjög fríður maður
sýnum. Skuggasveinn var allvel leikinn, en vantaði rödd og vöxt.
Yfirleitt hafði ég gaman af.“
Einn daginn fór Finnbogi í kynnisferð til Hafnarfjarðar og leizt þar
sérlega vel á sig. Um kvöldið var hann í leikhúsi og færir þá minningu
sína þannig til bókar:
„Þar var leikinn þýzkur leikur, „Heidelberg“, af mikilli snilld. Þar
lék hin þekkta og fallega leikkona, Guðrún Indriðadóttir, aðalhlut-
verkið, og Óskar Borg lék prinsinn af snilld. Margir fleiri léku af snilld í
þessum leik. Fólkið var heldra fólk, skrautklætt, og útbúnaður allur
hinn fegursti og í samræmi við það, sem leikurinn heimtaði. Þessi
leikur var leikinn af Leikfélagi bæjarins af beztu kröftum, sem fáanlegir
eru hér. Þetta var mjög viðburðarríkur dagur og skemmtilegur, ein-
hver skemmtilegasti sunnudagur, sem ég hef lifað.“
Sumarið 1930 var Finnbogi á síldveiðum fyrir Norðurlandi. Sam-
kvæmt dagbókinni verður skip hans fyrst til að leggja upp síld hjá hinni
nýbyggðu verksmiðju ríkisins, en það gerðist 19. júlí. Frá þessu sumri