Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 59

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 59
,,AF SKRIFUÐUM SKRÆÐUM ER ALLT GOTT“ 59 þar til ég sendi í sumar ruslið mitt til Bókmenntafélagsins, sem eigi verður alllítið. Eg vil ekki, að það flækist hér, Sveinn sölsar nóg í sig samt, en mér er dauðinn vís sem þeim, er burtkallazt hafa héðan úr veiki þeirri, sem gengið hefur yfir. Samt er illt, ef kviknar í bókasafninu eins og í Friðriksborg. Það ætti að vera járnkassi utan um öll handritin Þarna mun á ferðinni „stóri böggullinn“, sem Jón forseti þakkar fyrir í bréíí 10. ágúst þetta ár, ,,þó hann væri reyndar ekki eins feitur á mörinn eins og hann var á holdin, en það er synd að vera bæði ger og matvandur . . .“ En meðal annarrra orða, ,,... .Hvað er það, sem Sveinn Skúlason á? Eru það nokkur handrit merkileg? . . .“ Það var einmitt séra Sveinn Skúlason, sem Jón Borgfirðingur átti við í bréfinu og var á þessum árurn ritstjóri Norðra á Akureyri. í bréíl 12. nóv. árið áður haíði Jón Sigurðsson látið í ljós við nafna sinn, að gott væri, ef séra Sveinn „yrði laðaður til að láta skruddur“ upp í skuld við félagið, og í bréíl 14. maí 1860 spyr hann, hvort séra Sveinn vilji ekki láta Bók- menntafélagið fá Sturlungu, sem það eigi hjá honum, og Jón heldur áfram: „ . . . Þér ættið að leggja yður til að vita, hvað hann hefir, og ná í það, sem bezt er. Þó það væri til kaups með þolanlegu verði, þá læt ég það vera, því aldrei verður það að gagni hjá honum . . .“ En Jón Borgfirðingur á erfitt um vik að komast að séra Sveini og segir í bréfi til nafna síns 27. ágúst þetta ár: „ . . .Hræddur er ég um, að ég fái ekkert af handritum hjá Sveini, því hann er var um sig og lætur mig ekki sjá þau, en vitað hef ég til þess, að hann fær frá ýmsum sitthvað. Hann hefir fengið 2 eða 3 kvæðabækur, - hver hefir yfir 100 kvæði, öll gömul, - frá Gunnlögi á Skuggabjörgum í Deildardal í Skagafirði. Hann hefir safnað þeim. Það var klaufaskapur af mér að ná ekki í þær . . .“ Og hann varð sannspár. Eigi að síður kornst Sturlunguhandritið í eigu Bókmenntafélagsins og meira að segja frá séra Sveini sjálfum árið 1865.19 En kvæðabækur Gunnlaugs á Skuggabjörgum,20 5 talsins, sumar að vísu frá Þorsteini Þorsteinssyni á Upsum í Svarfaðardal, eignaðist Jón Sigurðsson og fleiri handrit frá séra Sveini. En þó að Jón Borgfirðingur yrði undir í glímunni við séra Svein, heldur hann áfram að senda nafna sínum bækur og handrit og fær hjartans þakkir fyrir og hvatningarorð um að þreytast ekki, þó að kvabbið gangi úr hófi fram og segja megi, ,,að það geti einn ágjarn maður heimt á einum tíma sem þúsund þjónustusamir andar geti ekki útvegað á ári“, eins og Jón Sigurðsson kemst að orði í bréfi 13. júlí 1861.

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.