Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Síða 62

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Síða 62
62 GRÍMUR M. HELGASON Og svona gengu bréfln á milli þeirra, á meðan báðir liíðu. Jón Sigurðsson biður um þetta eða hitt smálegt eða sjaldgæft. Nafni hans Borgflrðingur heitir á hann ,,að fara í göngur“ fyrir hann, þótt erfitt sé um vik, af því að leitarmennirnir eru fleiri en hann og sumir fótfrárri og verða því stundum á undan. En það má líka fara í eftirleit, sýna þolinmæði og gefast ekki upp, alltaf von á eftirlegukindum. Síðan sendir hann nafna sínum afraksturinn til Kaupmannahafnar, ,,rusl“, „smárusl“, „smávegis dót“ eða „fáein handrit, ekki neitt merkilegt“, og Jón Sigurðsson þakkar honum umhyggjuna og tryggðina og biður hann fyrir alla muni að halda uppteknum hætti, enginn finni eins vel lyktina af skræðunum og hann. En þó að Jóni Borgfirðingi tækist ekki að komast yfir eins mörg handrit og bækur og hann hefði kosið til þess að senda Bókmennta- félaginu, vakti það honum jafnan gleði, effélagið eignaðist handrit úr söfnum annarra manna. Svo er til að mynda, er hann minnist á safn Þorsteins Þorsteinssonar á Upsum í Svarfaðardal í bréfi til nafna síns 7. sept. 1870, sem hann segir, að eigi marga góða skruddu, en félagið eignaðist einmitt safn Þorsteins smám saman. I þessu sama bréfi getur hann þess og, að Reykjavíkurdeildin hafi keypt handrit Jóns Bjarna- sonar í Þórormstungu í Vatnsdal af ekkju hans, Guðrúnu Guðmunds- dóttur, og telur, að þar muni deildin hafa gert góð kaup. Þess má raunar geta, að Kaupmannahafnardeildin eignaðist sum afhandritum Jóns í Þórormstungu, um hendur Jóns Borgfirðings. En fátæktin er leiður förunautur, og illa gekk Jóni Borgfirðingi að lúka skuldum sínum við Bókmenntafélagið, enda þótt það gyldi hon- um stundum verð fyrir ,,ruslið“. Hann bar sig upp undan þessu við nafna sinn, sem farast svo orð í bréfi 19. ágúst 1870: ,,. . . Um reikningamál yðar við Bókmenntafélagið get ég nú ekki annað sagt en það, að þér standið ekki vel í því eftir okkar reikningum. Þér senduð okkur handrit, sem þér gáfuð félaginu, en seinna borguðum við 50 rd. eftir ósk yður fyrir sömu handrit. Allt í allt er óborgað af bókareikningi félagsins rúmir 100 rd., ef ég man rétt. Þar að auki eru tillögin. En hitt er annað mál, að við munum ekki vera hættulegir skuldakröfumenn, og ég hefi ekkert á móti, að þér svarið þessari 30 dala kröfu með því að segja, að þér vonið það likviderist í okkar viðskiptum, en þér verðið þá líka að láta okkar deild fá nokkuð, sem bein er í, og ekki tómar ruður, en fá deildinni í Reykjavík það, sem merkilegast er. Því þó ég alls ekki sjái eftir því, sem hún fær, þá er þó hver sjálfum sér næstur . . .“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar: Megintexti (01.01.1979)
https://timarit.is/issue/230905

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

Megintexti (01.01.1979)

Gongd: