Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 77
Landsbókasafnið 1978
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafns var í árslok
BÓKAGJAFIR samkvæmt aðfangaskrá 343.622 bindi og
hafði vaxið á árinu um 5872 bindi.
Mikill fjöldi binda var sem fyrr gefinn safninu eða fenginn í skiptum.
Af einstökum gjöfum skal einnar getið sérstaklega:
Jakob Lindenskov landstjórnarmaður í Færeyjum tilkynnti ríkis-
stjórn Islands í júlí 1974, að Fproya Landsstýri hefði í tilefni af ellefu
alda afmæli Islandsbyggðar ákveðið að gefa Islendingum bókagjöf, er
afhent yrði síðar, þegar nánari ákvörðun hefði verið tekin um innihald
hennar.
Samkvæmt tillögu færeyska landsbókavarðarins, Sverris Egholms,
skyldu Islendingar sjálfir segja til um, hverjar bækur þeir kysu sér, og
varð að ráði, að Landsbókasafn Islands fengi í sinn hlut ýmis rit, er það
vantaði í hinn færeyska bókakost safnsins, en til Háskólabókasafnsins,
er ætti minna fyrir, gengi gott úrval færeyskra rita, einkum frá síðari
árum.
Þegar Sverri Egholm landsbókavörður sótti í júní 1978 þing nor-
rænna rannsóknarbókavarða í Reykjavík í boði forráðamanna þess,
hafði hann meðferðis færeysku bókagjöfma, en í henni eru alls um 450
bindi, er skiptast á milli Landsbókasafns og Háskólabókasafns.
Gefendur hafa látið gera sérstaka skrá um gjöfina: Bókagavan frá
Föryoya Landsstýri, og er hér að ofan stuðzt við greinargerð á kápu
skrárinnar, en þar segir svo að lokum:
„Hetta fjölbroytta úrval saman við teim bókum sum frammanundan
eru í íslendsku sövnunum, gevur rættiliga góða lýsing av Föroyum,
landinum og fólkinum, sögu og mentan, og fer vónandi at gera sítt til
fruktargott samstarv millum bröðratjóðirnar.“
Rithöfundurinn og listamaðurinn William Heinesen hefur gert afar
skemmtilegt bókmerki, sem límt hefur verið í hverja bók. En Sverri