Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 82
82
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978
manns í Elliðaey, ennfremur ýmis rímnahandrit og brot með sömu
hendi, en eitt með hendi Konráðs Konráðssonar á Svarfhóli í Miðdöl-
um. Gjöf dótturdóttur Magnúsar, Ingu Eðvalds, Reykjavík.
Indriði Indriðason rithöfundur gaf eiginhandarrit Sigurðar Júl.
Jóhannessonar, sem eftir var farið í útgáfu Ljóða hans, Reykjavík 1950.
Handritunum fylgir formáli Steingríms Arasonar í eiginhandarriti.
Ljóðmæli Jakobs Frímannssonar frá Skúfi. Gjöf Þormóðs sonar
hans.
„Samsærið gegn mannkyninu,“ grein Þórbergs Þórðarsonar með
hendi hans. Gjöffrú Þóru Vigfúsdóttur, Reykjavík. Hún gafeinnig bréf
Þórbergs til Kristins E. Andréssonar, dags. 3.9.1960.
Guðlaugur Jónsson fyrrv. lögregluþjónn, Reykjavík, gaf margvísleg
handrit, og eru þar m. a. Sögubók með nokkrum fornaldar- og riddara-
sögum; Vetrarbrautin, sveitarblað afSkógarströnd, 1. árg. nr. 2, 4 og 5
(að líkindum); ennfremur rímur og ljóðmæli eftir ýmsa, svo sem
Lykladrengsríma eftir Lýð Jónsson á Skipaskaga; Bæjavísur um Mið-
dali; Ljóð og laust mál eftir Bergljótu og Jón Jónsbörn, afasystkini
gefanda.
Filippía Kristjánsdóttir (Hugrún) gaf í vélriti tvennar ljóðasyrpur
eftir sig, en þær eru ,,Strengjakliður“ og ,,Strokubörnin“. Voru aðrar
syrpur komnar áður.
Tvö kver: 1. a) örnefni í Eyrarbakkafjöru 1935. b) Fjörunytjar og
fiskimið 1900. 2. örnefni í Stokkseyrarfjöru og víðar. - Gjöf Jórunnar
Oddsdóttur fyrrv. símstjóra um hendur Haralds Ólafssonar banka-
manns.
Torfi Jónsson rannsóknarlögreglumaður afhenti fáein gögn úr fór-
um föður síns, sr. Jóns Guðnasonar skjalavarðar, til viðbótar gögnum,
er komin voru áður.
Frú Málfríður Sigurðardóttir á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka gaf um
hendur tengdasonar síns, Rögnvalds Björnssonar verkstjóra, Reykja-
vík, ættartölu Sigurðar Gíslasonar tré- og múrsmiðs í Vinaminni á
Eyrarbakka. Vélrit.
Helgi Þorláksson sagnfræðingur, Reykjavík, afhenti Ritdómabók
,,Framtíðarinnar“ 22. jan. 1921-3. marz 1922. Bókin er komin úr
fórum foður gefanda, Þorláks Helgasonar verkfræðings.
Þór Magnússon þjóðminjavörður afhenti ýmis gögn úr fórum Ás-
mundar Jónssonar frá Skúfsstöðum.
Frú Lillian Teitsson afhenti handrit Helga Sig. Helgasonar tón-
skálds að gjöf frá frú Leo J. Helgason í Seattle.