Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Side 84
84
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978
Kvæðakver með hendi Einars Sigurðssonar um skeið í Firði í Mjóa-
firði eystra. Gjöf frú önnu Jónsdóttur frá Fjarðarkoti í Mjóafirði, nú í
Neskaupstað, um hendur Sigurðar Kristinssonar kennara, sem einnig
afhenti dagbók Benedikts Sveinssonar frá Firði í Mjóafirði 29. sept.
1926-31. júlí 1927.
Frú Steinunn Guðmundsdóttir gaf um hendur systur sinnar, Krist-
bjargar Thorarensen, viðbót við umrædda dagbók Benedikts Sveins-
sonar.
Dr. Jakob Benediktsson afhenti bréf, er farið höfðu milli hans og
ritstjórnar Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder, og nokkur
önnur gögn varðandi það verk.
Saga Arna biskups Þorlákssonar með hendi Skúla Sívertsens í
Hrappsey. Gjöf Ólafs Jónssonar læknis, Reykjavík.
Ragnheiður Hermannsdóttir gaf stóra mynd, innrammaða, af for-
föður sínum, Gísla Konráðssyni fræðimanni, og hangir hún nú í hand-
ritasal safnsins. Þar er einnig varðveitt gömul bókakista Gísla, klædd
selskinni.
Af keyptum handritum skal þessara getið:
Fandsbókasafn fékk úr Þjóðhátíðarsjóði 420 þús. króna styrk til
kaupa á handriti Eggerts Ólafssonar Populorum Aqvilonarium theo-
logiae gentilis stricte sumtae historia sive de natura deorum. Hafði
Guðmundur Axelsson í Klausturhólum keypt handrit þetta á uppboði
hjá Sotheby’s í London í júní 1977, en síðan keypti safnið það af
honum. Styrkurinn úr Þjóðhátíðarsjóði nam hálfu andvirðinu. Birt er
framar í þessu hefti grein Þorleifs Jónssonar um umrætt rit Eggerts
Ólafssonar.
Keypt var af Einari J. Reynis skrifstofustjóra, Reykjavík, annála-
handrit í arkarbroti, sem á eru skrifaðir Skarðsárannáll og Hestsannáll
með viðbæti eftir Th. Th. 1717- 1724. Meginhlutinn er skrifaður 1737,
en viðbætirinn eftir 1780. Einar fékk handritið hjá föður sínum, Jósep
Björnssyni skólastjóra á Hólum.
,,Spunakonan“ eftir Guðmund Kamban, eiginhandarrit. Keypt af
frú Sigríði Meyvantsdóttur, Reykjavík.
,,Samtíningur,“ fáeinir þættir úr atvinnusögu Helgafellssveitar og
næsta nágrennis, ennfremur nokkrar ræður og greinar eftir Björn
Jónsson bónda á Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit og með hendi
hans. Keypt af höfundi á árinu 1977.
Keypt voru á filmu gögn um hina dönsku þýðingu Finns Magnús-
sonar á Búnaðarbálki Eggerts Ólafssonar, en þau eru í safni Helge