Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 85

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 85
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978 85 Væringsaasens, sem varðveitt eru í Glomdalssafninu í Elverum í Nor- egi. Handrit þau, sem nú verða talin voru öll keypt í Klausturhólum: Þórðarbænir, skrifaðar 1704 eftir prentuðu útgáfunni 1697 o. fl. Kver með Maríurímum sr. Sigurðar í Presthólum og vikubænum (vantar aftan við). Með hendi Gellers (Gellis) Arnasonar á Steinaborg á Berufjarðarströnd 1834. Lítið kver með ýmsu efni, svo sem Tímarímu Jóns Sigurðssonar, Hávamálum, Samstæðum sr. Hallgríms Péturssonar, Ómennsku- kvæði sr. Stefáns Ólafssonar o. m. fl. ,,Reisa til Bethel“ útlagt og ljóðað af sr. Gunnlaugi Snorrasyni. Aftan við eru Erfiljóð, o. fl. eftir sr. Gunnlaug. Með hendi Árna Böðvarssonar skálds á ökrum. Stutt ágrip Réttritabókar Islendinga eftir Eggert Ólafsson með hendi frá síðara hluta 18. aldar. Ljóðakver með hendi Magnúsar Hj. Magnússonar 1902. Kvæðakver með hendi Jons Jonssonar í Seyðisfirði austur, m. a. fornkvæði. Þrjár ættartölur með hendi Gísla Konráðssonar. Þessir afhentu gögn, án þess að þeirra verði nánara getið hér: Dr. Aðalgeir Kristjánsson, Reykjavík. - Agnar Þórðarson bókavörður, Reykjavík. - Egill Bjarnason fornbókasali, Kópavogi. - Friðgeir Björnsson, Reykjavík. - Guðmunda Jónsdóttir frá Hofi í Dýrafirði. — Haraldur Sigurðsson deildarstjóri, Reykjavík. — Málfríður Einars- dóttir, Reykjavík. - Oddný Sigurðardóttir, Kópavogi. - Páll Baldvins- son, Reykjavík. - Tómás Helgason húsvörður, Reykjavík. - Torfi Jónsson rannsóknarlögreglumaður, Reykjavík. - Þórhildur Sveinsdóttir skáldkona. - Þorsteinn Helgason, Reykjavík. - Þorsteinn Valgeirsson, Keflavík. Vér flytjum öllum gefendum handrita beztu þakkir. ÞJÓÐDEILD Nokkur breyting var á starfsskipan í þjóð- deild, svo sem nánara er greint í kaflanum um starfslið. Ólafur Pálmason, sem unnið hafði um tveggja ára skeið að íslenzkri bókaskrá 1534—1844, varð nú enn að hverfa frá því verki að skránni um samtíðarverkin, er gefur engin grið. Þegar litið er á hið fjölskylda hlutverk þjóðdeildar, er liðskostur hennar hvergi nærri nægur. Landsbókasafn verður, ef það á að fylgja nafni, að geta sinnt hvorumtveggja þættinum, skráningu samtíðarefnis og eldra efnis, auk

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.