Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 86
86
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978
þess sem mörg sérverkefni kalla að. Sótt hefur verið í tvígang, t. a. m.,
um að mega ráða í hálfa stöðu sérfróðan mann um tónlist, en efni í
þeirri grein er mikið og sumt vandmeðfarið. I þjóðbókasöfnum ná-
grannalandanna eru öflugar tónlistardeildir, en við hófsamlegri mála-
leitan Landsbókasafns í þessu efni hefur ekki verið orðið enn sem
komið er.
Böðvar Kvaran vann áfram í ígripum að allsherjarskrá um íslenzk
tímarit og blöð. Er ætlunin, að sú skrá verði einn áfangi íslenzkrar
bókaskrá, komi út næst á eftir áfanganum 1534 — 1844, sem áður er að
vikið.
Ritauki þjóðdeildar nam á árinu 3541 færslu í aðfangabók.
Gengið var á árinu frá samkomulagi við Félag íslenzkra bókaútgef-
enda um það, að útgefendur afhentu Landsbókasafni eitt eintak hverr-
ar bókar, jafnóðum og út kemur, til skráningar í íslenzka bókaskrá og
varðveizlu í forlagsbindasafni Landsbókasafns.
Gegn þessu fá útgefendur til birtingar í íslenzkum bókatíðindum ár
hvert þá skrá, sem þjóðdeild Landsbókasafns tekur saman um rit þau,
er ú t hafa komið frá áramótum til nóvemberloka, og er þá fyrst og fremst
miðað við rit, er fara á almennan markað. Skrá þessi verður síðan stofn
Islenzkrar bókaskrár um rit undanfarandi árs, sem Landsbókasafn
gefur út ár hvert.
Með þessu samkomulagi er tryggt, að Landsbókasafn fái ný rit til
skráningar sem næst jafnskjótt og þau koma út, jafnframt því sem unnt
verður framvegis að varðveita ritin í þeim búningi, sem þau bera,
þegar þau koma út. En prentskilaeintök eru að jafnaði óbundin, svo að
band bóka t. a. m. verður ekki ráðið af þeim.
Umrætt samkomulag er vitaskuld alls óviðkomandi lögunum um
skylduskil til safna.
DEILD ERLENDRA Fastir starfsmenn voru hinir sömu og sl.
RITA ár. Lausráðin voru Hadda Þorsteinsdótt-
ir, Magnús Snædal og Skjöldur Eiríksson. Hadda og Magnús önnuð-
ust einkum salgæzlu, en Skjöldur hafði sem fyrr umsjón með bóka-
geymslum og bókaflutningum.
Samskrá um erlendan ritauka í íslenzkum rannsóknarbókasöfnum
kom út að vanda tvö hefti tvisvar á ári, og hafði Áslaug Ottesen
bókavörður umsjón með henni, en naut aðstoðar Ingibjargar Sæ-
mundsdóttur við vélritun skrárinnar. Þrettán bókasöfn leggja nú til
efni í skrána.