Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 87

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 87
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978 87 Kristín Gústafsdóttir bókavörður annaðist m. a. hin erlendu tímarit safnsins, en Sigríður Helgadóttir bókavörður (í V2 stöðu) vann að endurskráningu erlendra rita, einkum í bókmenntum. Erlendur ritauki nam á árinu 2331 bindi. Talsvert magn erlendra rita var flutt í bókageymslur utan safns að Sölvhólsgötu 7, í Alþýðuhúsið og að Hverfisgötu 4. Er geymslurými á þessum stöðum senn þrotið, og verður enn að leita fyrir sér um aukið rými utan safns. Má nærri geta, hve mjög þrengsli í aðalsafninu harnla allri starfsemi, og því ekki nema von, að mönnum þyki sárt að sjá, hve seint sækist smíði Þjóðarbókhlöðu. Samskrá sú um erlend tímarit, er verið hefur í smíðum lengi, kom út á árinu. Er þar saman komið efni úr 86 söfnum og stofnunum, alls 7757 tímarit. Af þeim berast 5694 tímarit enn, þar sem aftur 2063 eru hætt að berast. Nú berst sama tímaritið stundum í tvö eða fleiri söfn, svo að heild- artala titla er vitaskuld lægri eða 5854. Náin samvinna var milli Landsbókasafns og Háskólabókasafns um úrvinnslu efnisins, er reyndist meira verk en ætlað var í upphafi. Þórir Ragnarsson bókavörður í Háskólabókasafni hafði aðalumsjón með skránni, en auk hans unnu einkum að henni bókaverðirnir Aðalheiður Friðþjófsdóttir og Kristín Gústafsdóttir í Landsbókasafni. Með útgáfu skrárinnar fæst nú loks rækilegt yfirlit um erlendan tímaritakost í íslenzkum söfnum og stofnununr, sem stuðla á að greið- ari notkun hans, jafnframt því sem hér er lagður grundvöllur að aukinni samvinnu safna og stofnana, bæði að því er varðar tímarita- kaup og not þeirra. Eins og frá var skýrt í síðustu Arbók, erum vér aðilar að Samskrá þeirri um erlend tímarit á Norðurlöndum (NOSP), sem unnið hefur verið að um árabil. Er tímaritakostur íslenzku safnanna nú kominn á gataspjöld og segulband og með þeim hætti í norrænu samskrána, en þó einungis sá hluti hans, sem alþjóðlegar staðaltölur eru til við. Þorleifur Jónsson vann það undirbúningsverk, er vinna þurfti, áður en tímaritakostur íslenzku skrárinnar yrði þannig lagður á hinn norræna databanka. STARFSLIÐ Haraldur Sigurðsson lét af störfum fyrir aldurs sakir 1. ágúst. Hann réðst bóka- vörður að safninu 1946 og gegndi tvö síðustu árin deildarstjórastarfi í

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.