Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 89

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 89
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978 89 Menntamálaráðuneytið bauð Vilhjálmi Bjarnar umsjónarmanni Fiske-safnsins við bókasafn Cornell-háskóla í Iþöku í New York ríki, hingað heim á þessum tímamótum í viðurkenningarskyni við hið merka starf, sem þar hefur verið unnið í íslenzkri bókfræði og til að kynna íslenzka menningu. Birtur er í þessu hefti þáttur eftir Vilhjálm um Fiske-safnið, ennfremur ávarp hans við afhendingu Al- þingisbókahandrita, er hann færði Þjóðskjalasafni Islands að gjöf frá bókasafni Cornell-háskóla 6. janúar. Bjarni Vilhjálmsson þakkaði gjöfina með ræðu, og er hún einnig birt hér. Líkan það af þjóðarbókhlöðu, er Guðlaugur Jörundsson gerði eftir teikningum arkitektanna Manfreðs Vilhjálmssonar og Þorvalds S. Þorvaldssonar, var til sýnis febrúarmánuð í anddyri Safnahússins ásamt ljósmyndum af því og teikningum bókhlöðunnar. Vorsýning var haldin á ýmsu fágætu eða sérstæðu bókakyns, er safninu hefur áskotnazt undanfarin misseri. I júní var sett upp sýning, er sýndi nokkra helztu áfanga í útgáfusögu íslenzkra rita. Nokkur handrit, tengd þessari sögu, voru og á sýning- unni. Sýninguna sóttu í upphafi m. a. um eitt hundrað bókaverðir, er sátu þing Norræna rannsóknarbókavarðasambandsins í Reykjavík 17.-23. júní. Sýning þessi stóð fram eftir sumri. Hinn 11. september var efnt til sýningar á verkum Henriks Ibsens í minningu 150 ára afmælis hans fyrr á árinu. Sýning þessi stóð út októbermánuð. I nóvember var efnt til sýningar á færeysku bókagjöfmni, sem skýrt var frá fyrr í þessu yfirliti, þeim hluta hennar, er Landsbókasafn fékk. Háskólabókasafn efndi á sama tíma til sýningar á sínum hluta gjafar- innar, og hittist svo á, að sýningarnar hér hófust um svipað leyti og Færeyingar minntust 150 ára afmælis Landsbókasavns Fproya, en það hlaut konungsstaðfestingu 5. nóvember 1828. FERÐIR Fyrir alllöngu komu fram tilmæli um það frá sendiráði Sovétríkjanna hér, að efnt yrði til nokkurra kynna og samskipta með Landsbókasafni Islands og Leninsafninu í Moskvu, Þjóðbókasafni Sovétríkjanna, m. a. með gagnkvæmum heimsóknum fulltrúa safnanna. Ætlunin var, að frú N. N. Solovijeva aðstoðarforstjóri Leninsafnsins kæmi hingað í október 1977, en sú heimsókn fórst þá fyrir. Málinu var síðan haldið vakandi, og réðst svo, að undirritaður fór í vikuheimsókn

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.