Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Page 94
94
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978
að hnýta band milli Noregs og íslands. Leiðin, sem forfeður voru fóru
og við forum í dag, efvið ætlum að treysta böndin enn betur, hún er oíin
inn í teppið og dregur okkur inn í það líka. Og svo er það svo norskt:
Orðin norrænn og sagnaþytur koma manni ósjálfrátt í hug, a. m. k. er
hér um mikla vefnaðarlist að ræða, gjöf, sem við getum verið hreykin af
að senda vinum okkar á Islandi.“
PJÓÐARBÓKHLAÐA Þótt í lánsfjáráætlun þeirri, er samþykkt
var í maímánuði síðastliðnum, væri gert
ráð fyrir 200 millj. króna lántöku vegna áframhaldandi framkvæmda
við þjóðarbókhlöðu, og að auki væri geymd íjárveiting, tæplega 30
millj. króna, varð næsti áfangi, sá að steypa upp bókhlöðuna, ekki
boðinn út, þegar öll gögn voru dlbúin í júnímánuði í sumar. Mennta-
málaráðuneytið leyfði það fyrir sitt leyti, en fjármálaráðherra vildi
ekkiumsinna. m. k.neytaþessararlántökuheimildar,þótthannáþingi
fyrir jól hefði staðið upp og fallizt á, að ætlaðar yrðu 200 milljónir til
framkvæmda við Þjóðarbókhlöðu á árinu. Var það raunar sú upphæð,
er sett var í fjárlagafrumvarpið í október, en síðan hafði fjárveitinga-
nefnd skorið hana niður í 75 milljónir króna.
Ymsir urðu til að hreyfa bókhlöðumálinu ásl. sumri og undrast þann
drátt, sem orðinn var á framkvæmdum. Fyrir atbeina Ragnars Arnalds
menntamálaráðherra og með samþykki Tómasar Árnasonar fjármála-
ráðherra heimilaði Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir 15.
október sl., að boðin yrði út uppsteypa á kjallara hússins.
Gert er ráð fyrir, að umræddum áfanga verði lokið í júnímánuði 1980.
I frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1980 voru áætlaðar 300 milljónir
króna til Þjóðarbókhlöðu, og er þess að vænta, að sú upphæð a. m. k.
verði í því frumvarpi, sem lagt verður fyrir nýtt þing að loknum
kosningum. Menn geta svo hins vegar velt því fyrir sér, hve langan
tíma bókhlöðusmíðin muni taka, ef ekki verður veitt til hennar árlega
meira fé en raun hefur orðið á til þessa. Byggingarnefnd reifaði þetta
mál sl. vor, þegar hún í bréfi til Fjármála- og áætlanadeildar Mennta-
málaráðuneytisins lagði fram nýja framkvæmda- og fjármagnsáætlun
vegna undirbúnings fjárlaga fyrir árið 1980. I bréfinu segir svo m. a.:
„Eins og byggingarnefnd hefur áður hreyft í tillögum sínum, verður
bókhlöðunni ekki komið upp á skaplegum tíma, nema til komi áætlun í
líkingu við landgræðsluáætlunina 1975-79. Sú áætlun var gerð í
minningu 11 alda byggðar í landinu, en Þjóðarbókhlaða skyldi einnig
reist í minningu þeirra tímamóta.