Frjáls verslun - 01.12.1950, Blaðsíða 2
GÍSLI HALLDÓRSSON, verkfr.:
k HVERFANDA
í upphafi var orðið.
Kunningi minn hefur megnustu fyrirlitningu á
hverskyns skrifum í bækur og hlöð og segir, að mér sé
skrambans nær að framkvæma eitthvað af öllu J>ví.
sem ég sé sí og æ að blaðra um.
Með sjálfum mér hef ég orðið að viðurkenna, að í
þessu felst nokkur sannleiki, enda þótt ég hafi stund-
um borið hönd fyrir höfuð mér og spurt viðkomandi,
sem aldrei stingur niður penna: Hvar eru þá þín stór-
virki?
Satt að segja er ómögulegt að koma auga á það, sem
hann hefur afrekað um ævina! Nei, það er ekki von
að maður geti framkvæmt allt, sem manni dettur í
hug. En ætti það að vera fullnægjandi á°tæða til að
þegja? Satt að segja, þá sé ég þó dálítið eftir öllum
þeim tíma og peningum, sem ég hef varið í athuganir
og skrif eins og t. d. boranir eftir gufu í Henglinum,
til rafvirkiur.ar og hitaveitu fyrir Reykjavík. Því að
j)að er vafamál að það glæsilega fyrirtæki rísi upp
meðan ég tóri, þó að skilningur manna hafi stórlega
batnað við gufuborunina í Hafnarfirði fyrir skemmstu.
Ég hefði sjálfsagt getað varið tíma mínum betur í emin
þágu, oft og mörgum sinnum. Kæling á bræð=lusíld
var önnur hugmynd, sem mjög slæma meðferð hefur
hlotið. en felur í sér ^tórkosllega möguleika. Aukin
dýpt í síldarþróm og háir tankar til að geyma í síld er
enn ein af hugmyndum mínum, og hún er framkvæmd
í fyrsta skipti úti í Örfirisey. Tveg"ia þrepa frystivél-
ar í hraðfr'rstihúsin innleiddust ekki fyrr en efir langt
])óf og blaðaskammir. Nú vill enginn annað. Fastar
skrúfur komu í stað lausra í mótorbátana — og það
ber ekki á öðru en bærilega gangi að draga línuna.
Dieselvélin rvður burt glóðarhausnum, og léttbvggða
hraðgenga vélin kemur í stað hinnar |)ungbvggðu og
hæggengu. Það er Davíð gegn Golíat og Þorsteini
Loftrsyni. Eg man alltaf. be.gar fyrsta 165 ha. Gray-
vélin var til sýnis í Fiskifélagshúsinu. Enginn vildi
Irúa því. að hún gæti snúið 50 tommu skrúfu á mótor-
bát. — Þegar ég, árið 1934, skrifaði um dieselvélar í
togara og hið nýia lag á togurum, sem fvrst var reynt
í Þýzkalandi, hringir Gísli Jónsson í mig einn sunnu-
dagsmorgun og spvr. hvort é.g sé genginn af göflunum.
Skip með þes;u lagi geti aldrei borgað sig. Það sé
ekkert pláss í þessum mjótt stefnum! Rúmum tíu ár-
um síðar byggir hann sjálfur 40 togara með þessu
lagi! Ég hafði J)á nýlega lagt fram teikningar af ný-
tízku amerískum togurum með rafmagnsdrifnum tog-
vindum af mjög fullkominni gerð, einnig tilhoð. Um
livorttveggja er getið í Sjómannablaðinu frá þeirri tíð.
Togarar þessir kostuðu 2,5 til 3 milljónir króna hver
og gálu afhenzt svo fljótt, að ef þeir hefðu verið
key])lir, hefðu ]>eir verið búnir að borga sig upp í topp,
áður en fyrsti enski togarinn hljóp af stokkunum. En
menn voru ekki vissir um, að Ameríkumenn kynnu að
byggja togara. Sérstök nefnd var send til að sjá, hvort
ég hefði sagt satt, en á meðan hún var í Ameríku var
önnur nefnd send að kaupa togara í Bretlandi. Það
kom síðar í ljós, að rafmagnsspilin eru ágæt, að raf-
soðnir togarar eru léttari og bera meira en hnoðaðir,
og að hnoðin geta losnað í nýsköpunartogurum. Einn-
ig, að dieselvélar eru nothæfar í togara, enda þótt þær
séu mi'munandi góðar. Ef hinum amerísku tilboðum
hefði verið tekið og að ráðum mínum farið, hefði
])jóðfélaginu græðst nokkrir milljónatugir. Kannske
100 milljónir!
Hugmynd mín um að taka upp almenna notkun
hraðsuðu])otta til að spara suðurafmagn mun hafa
verið skilin sem gróðabrallshugmynd og ekki athug-
að, að hraðsuðupottar fyrir hvert einasta heimili í
Reykjavík kostuðu aðeins 2 milljón krónur, en myndu
spara rafmagnsálag eins og það, sem fæst frá topp-
stöðinni og kostar 20 milljón krónur. Auk þess myndu
þeir spara rafleiðslur og reksturskostnað, olíu og
vinnulaun, að ekki sé talað um tíma og fyrirhöfn. Nú
mun brátt þurfa að skammta rafmagnið og baka hús-
mæðrum aukin óþægindi.
Varastöðin á Reykjum var hugmynd, sem ég bar
fram í bæjarstjórn 1948 eða 1949, og bauðst ég til að
útvega vélarnar fyrir áramát 1949. Utboð var loks
framkvæmt og reyndist tilboð mitt lægst og hagkvæm-
ast, en öðru tilboði var samt tekið. Og vélarnar eru
ekki enn komnar_upp. í gær (9. des.) var hitaveitan
tekin af vegna rafmagnsbilunar!
162
FRJÁLSVERZLUN