Frjáls verslun - 01.12.1960, Qupperneq 14
Séð yfir Siglufjörð. Til vinslri Hvanneyrarskálin og fjallið Strákar. Til hægri. 1 baksýn, Siglunes
ur kútterinn „Orion“ til síldveiðanna. Útgerðin
heppnaðist ágætlega, og þótt skipin væru norsk,
höfðu þau sænskan fána meðferðis til að undirstrika,
að hér væri sænskt fyrirtæki á ferð, og mun þetta
vera í fyrsta skipti að small í sænskum fána í Siglu-
fjarðarhöfn.
Þessi fyrsta vel heppnaða tilraun Svíans varð
til þess að Solbu fékk tvo aðra landa sína í félag
við sig á næsta ári, og sendu þeir þá stærri leið-
angur til Siglufjarðar. Þessir félagar hans hétu
H. H. Kristensen og Erik Bolin. Þeir sendu gufu-
skipið „Serla“ frá Gautaborg til íslandsveiða sum-
arið 1906. Skipstjóri var Carl Kock frá Gautaborg,
og er „Serla“ óefað fyrsta sænska gufuskipið, er
siglir inn í Siglufjarðarhöfn.
Solbu ætlaði árið áður, 1905, að leigja sænskt
gufuskip í hinn fyrsta leiðangur, en leigan strand-
aði á því að ekkert sænskt sjótryggingarfélag fékkst
til að tryggja farm og útbúnað á hinum fjarlægu
miðum við Norður-ísland.
Hinir tveir leiðangrar Solbu og félaga hans hcppn-
uðust vel og framar vonum, og þetta framtak
þeirra varð til þess, að árið 1907 komu hingað
leiðangrar frá Smögen og Lysekil og upp frá því
tóku Svíar á ári hverju þátt í síldveiðinni hér fyrir
norðan.
Edvin Jacobsen hafði yfirumsjón mcð síldarlcið-
angrum þeirra Solbu, Kristensens og Bolin þau 14
ár, er þeir gerðu skip sín út til síldveiða hingað,
og er ekki að efa að Svíarnir hafa notið dugnaðar
hans og fyrirhyggju, þar sem Jacobsen var maður
mjög áreiðanlegur í öllum viðskiptum.
Traust það, er hann ávann sér hjá Svíum, má
marka á því, að í fyrri heimsstyrjöldinni löggilti
matvælanefnd Svía hann sem trúnaðarmann sinn
varðandi yfirtöku á saltsíld frá íslandi. Það var
vissulega ábyrgðarstarf eins og verkun síldar var
háttað á þeim dögum.
Jacobsen geymdi í fórum sínum fyrsta sænska
fánann er blakti hér í Siglufjarðarhöfn á skonnort-
unni ,;Pilen“ sumarið 1905. Hann varðveitli fán-
ann sem minjagrip, og þegar síðari heimsstyrjöldin
var að hefjast sumarið 1939, afhenti hann aðal-
ræðismanni Svía á íslandi, hr. 0. Johansen, fánann
með tilmælum um að liann fengi samastað á Sjö-
fartsmuseum í Gautaborg, og geri ég ráð fyrir að
fáninn sér nú þar niður kominn.
Svíar voru, frá upphafi síldveiða fvrir Norður-
landi. helztu keupendur saltaðrar síldar, og þeir
voru jafnan langstærstu kaupendurnir fram að 1940.
Um skeið voru þeir því nær einráðir á saltsíldar-
markaðnum, og það má segja að þeir hafi — á
vissu tímabili — verið raunverulegir eigendur
margra síldarstöðvanna á Siglufirði, en svo komu
14
FRJÁLS VERZLUN