Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 40

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 40
af stofnendum ráðsins og í stjórn þess frá stofnun 1917 til 1933. For- maður skólanefndar Verzlunar- skóla Islands liefur hann verið sl. sex ár og í stjórn Iðnaðarmála- stofnunar íslands, á vegum Verzl- unarráðsins, frá 1954. Magnús var einn af hvatamönnum að stofnun Verzlunarsparisjóðsins og fyrsti formaður Lífeyrissjóðs Verzlunar- manna. Ilann hefur verið í safn- aðarstjórn Frikirkjusafnaðarins í Reykjavík sl. 14 ár og í yfirstjórn Oddfellowreglunnar á Islandi und- anfarin átta ár. Magnús er kvæntur danskri konu, Marie, fæddri Brask. Þau eiga tvö börn, Elsu gifta Skafta Benediktssyni, héraðsráðunaut, Garði í Aðaldal, S.-Þingeyjarsýslu, og Magnús, sem starfar við verzl- un föður síns. Skóverzlun M. H. Lyngdal íimmtíu ára í maí 1910 stofnaði Magnús II. Lyngdal skó- verzlun á Akureyri undir nafninu „Skóverzlun M. II. Lyngdal“ og rak hana til æviloka, 1934. Árið eftir keyptu Gunnar II. Kristjánsson og Karl L. Benediktsson verzlunina af Elínu Lyngdal, ekkju Magnúsar heitins. Var firmað rekið undir nafninu: Skóverzlun M. H. Lyngdal & Co. Þeir félagarnir ráku verzlunina til ársins 1944, er Guðjón Bern- harðsson gullsmiður keypti hana, en hann seldi síðan Gunnari Steingrímssyni ári síðar. Gunnar rak verzlunina til 1950, en scldi hana þá Gunnari Árnasyni, Akureyri og Brynjólfi Sveins- syni, Ólafsfirði. Verzlunin hafði í 40 ár starfað í Hafnarstræti 97, en var nú flutt að Skipagötu 1. Árið 1955 var firmað gert að lilutafélagi og flutt í Hafnarstræti 104. Við lát Péturs II. Lárussonar skókaupmanns keypti Skóverzlun M. II. Lyngdal hf. vörubirgðir verzlunar hans og flutti í húsnæði hennar að Hafnarstræti 103. Sýnir meðfylgjandi mynd núverandi húsnæði. Eftir að verzlunin fluttist þannig í stærri og betri húsakynni, hefur verið lögð mest áherzla á kvenskófatnað í henni. Mun verzlunin að jafnaði hafa citt bezta úrval af kvenskóm, sem völ er á hér á landi utan höfuðstaðarins. — Framkvæmda- stjóri verzlunarinnar er Gunnar Árnason, en for- maður félagsstjórnar er Þórður Gunnarsson. 40 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.