Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 16

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 16
mannanna eru málmhvell, og tíðni þeirra minnir á annríki dagsins. Fjallahringurinn er sveipaður furðu- legum bláma, litblæ hins ævintýralega. Þessi tæra birta, þessir mjúku, gagnsæju litir, þetta getur varla verið veruleiki! Hér eru litir og birta, sem teiknar- inn hefir ekki áður séð og heilla hugann. Hann fellur í stafi. Veruleiki eða draumur? Hinir skáld- legu þankar eru truflaðir, þar sem hann stendur hugsi og virðir fyrir sér bæinn og umhverfið. Það er klappað á öxl húmoristans frá Smálöndum, því frægð hans í síldarbænum er þegar orðin mikil. „Svensker?“ „Javisst!“ Það er spurt, hvort liann vilji vera svo góður að koma og fá einn dramm. Nokkrir Islendingar og Norðmenn ætla að gera sér dagamun. Það má gcra ráð fyrir, að Engström hafi langað mest til að taka upp liti sína og teikna fjörðinn, þannig laugaðan í liinni tæru sumarbirtu, og það má gera sér í hugarlund, að freistingin og staðfest- an hafi háð snarpa sennu í hugskoti hins slynga húmorista nokkur andartök, en auðvitað fór hin fyrrnefnda með sigur af hólmi! Það er sezt inn í stofu, sennilega stássstofu, og glös tekin fram. Hin íslenzka gestrisni er söm við sig. Það á ekki að gera það endasleppt við mig hér í firðinum; þannig er líklegast að liinn drátthagi Svíi liafi liugsað! Maður hefir sannarlega átt góða daga hér í Siglufirði! Gestgjafinn Wedin er ætíð sami höfðinginn og Goos sömuleiðis. Engström hefir átt ánægjulegar stundir með þeim Guðmundi Hall- grímssyni héraðslækni, séra Bjarna Þorsteinssyni sóknarpresti og tónskáldi, ennfremur Hafliða Guð- mundssyni hreppstjóra. Hann hefir rætt við helztu síldarmenn staðarins, þá Söbstad, Bakkevig, Jacob- sen og Tynes og marga fleiri. Þetta eru „gúbbar“, sem gott er að tala við. Iíann hefir farið í fjallgöngu og indæla útreiðar- túra suður í fjörðinn, „lautartúra“, eins og þeir voru nefndir í þá daga, ásamt fyrirfólki staðarins. Þar í faðmi fjallanna var áð og drukkið portvín, og svo var farið í leiki. Ennfremur hefir hann farið á síldveiðar og handfæraveiðar, farið í hnefaleik, sagt sögur úr Smálöndum, teiknað lítils háttar, og „brandararnir“ hafa fokið af honum. Og á milli alls þessa hefir púnsið og koníakið streymt niður kverkarnar og sent yl út í fingurgómana og niður í tær. Það er svo sem nóg að skrifa um þegar heim kemur og nógir „brandarar“ í gamanblaðið „Strix“, þegar gruggið er sezt af þessu öllu, sem maður hefir heyrt og séð! Og þá er bara að strá kryddi fyndninnar á allt saman, svo bragðið finnist af réttunum! „Jo jag tackar“, það er ekki hægt að slá hendi á móti glasi af góðu koníaki, og góðra vina fundur fæðir jafnan af sér nokkra brandara í safn hins snjalla húmorista. „Skál i stuen!“ glösin klingja, og það er setið og spjallað um síldina og heirna og geima góða stund. Allir eru góðglaðir, þegar risið er úr sætum. Að lok- um segir svo hinn gestrisni húsbóndi við Svíann: „Má ekki bjóða hr. Engström hálft staup af koníaki til?“ Engström leikur nú á als oddi, og hann kann vel að rneta það, sem vel er boðið. Hann svarar hárri röddu, sem er þrungin hinum sérstæða sænsk-eng- strömska húmor, eins og hann gerist beztur suður í Smálöndum: „Mér er sama livað þér kallið það, bara ef ég fæ staupið fullt!“ Landnám Svía í Siglufirði hafði heppnazt. Salt- síldarverzlunin komst á þeirra hendur. Og frægð Siglufjarðar hafði aukizt til stórra muna. ITéðan í frá myndu margir vel upplýstir Svíar þekkja Siglufjörð og sögueyjuna að einhverju leyti. Svo er fyrir að þakka norðlenzku síldinni. En fleiri eiga hér þakkir skilið. Höfðingsskapur John Wedins stuðlaði einnig að frægð staðarins. Og hið sama gerði þessi gestur hans og landi, ekki hvað sízt. Og kannske hefir enginn aukið hróður Siglufjarðar, utan landssteina, í ríkari mæli en hinn lipri og gáskafulli pcnni húmoristans Alberts Engströms. (Eftirprentun bönnuð.) 16 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.