Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 38
upplýsingar, því að þá er vitað, hvað þau eru í raun og veru að selja auglýsendum. A hinum Norð- urlöndunum, og reyndar í flestum menningarríkj- um, hefur upplagseftirlit verið starfrækt um mjög langt skeið, enda talið sjálfsagt og nauðsynlegt. Stjórn Sölutækni er kunnugt um, að margir stærstu auglýsendur landsins og áhugamenn aðrir, muni standa að baki henni í þessari viðleitni, og vonar að stjórnendur blaða og tímarita muni gera sér Ijósa nauðsyn þess, að vandamálin varðandi ein- takaskráningu verði leyst á þessu ári. í vor sein leið gekkst stjórnin fyrir námskeiði fyrir sölumenn og sölustjóra heildverzlana og iðn- fyrirtækja. Fyrir milligöngu Iðnaðarmálastofnunar íslands var fenginn hingað sænskur sölufræðingur, Rune Mattsson að nafni, á vegum framleiðsluráðs Evrópu. Mattsson veitir forstöðu ráðgjafafyrirtæk- inu Rationelt Næringsliv í Stokkhólmi. Námskeiðið var haldið dagana 14.—19. marz og voru þátttak- endur milli 30 og 40. Þar voru kynntar nýjungar í sölu og vörudreifingu, og lögð sérstök áherzla á þjálfun og kennslu í sölutækni. Eins og kunnugt er, hefur félagið frá byrjun lagt megináherzlu á fræðslustarfsemi í sambandi við sölu- og auglýsingastörf. Fyrir tilverknað félags- ins hafa verzlunarskólarnir nú tekið hin almennu námskeið upp á sína arma, svo að félagið getur eftirleiðis helgað sig betur sérhæfðum námskeiðum, svo sem fyrir stjórnendur fyrirtækja. Síðastliðið haust fóru á vegum félagsins, og fyrir milligöngu Iðnaðarmálastofnunar íslands, þrír aug- lýsingamenn til Bandaríkjanna til þess að kynna sér auglýsingatækni þar í landi. Menn þessir dvöld- ust í Bandaríkjunum um fimm vikna skeið. Þeir hafa látið í Ijós við stjórnina, að þessi för hafi verið mjög lærdómsrík og til hins mesta gagns. Það er skoðun stjórnar Sölutækni, að það verði eitt af aðalverkefnum félagsins í náinni framtíð að vinna að auknum skilningi á nauðsyn og gildi rannsókna á sviði vörudreifingar og stuðla að því, að slíkar rannsóknir verði gerðar á vegum félags- ins, ef til vill í sambandi við aðra aðila. í sumar var haldinn í fyrsta sinn hér á landi, stjórnarfundur Norræna sölutæknisambandsins — (Præsidemöde i Nordisk Salgs og Reklemaforbund). Fundurinn var haldinn 2. og 3. júlí sl., og var 41. stjórnarfundur sambandsins. Fundinn sóttu fjórir fulltrúar frá Svíþjóð, þrír frá Danmörku, þrír frá Noregi og einn frá Finnlandi. Af hálfu Sölutækni eiga sæti í stjórninni Gylfi Þ. Gíslason, Sigurður Magnússon og Þorvarður Jón Júlíusson. Viðskipta- málaráðherra Gylfi Þ. Gíslason dvaldist erlendis um þetta leyti og gat því ekki verið á fundinum. Auk áðurnefndra fulltrúa sátu fundinn aðrir stjórn armeðlimir Sölutækni og framkvæmdastjóri félags- ins. A stjórnarfundunum eru fluttar skýrslur frá sölu- tæknissamböndunum í hverju landi, svo að stjórnin fylgist með því, sem gerist. Þar eru rædd þau mál, sem á döfinni eru í hverju landi, í því skyni að starfsemi sambandanna sé samhæfð. Einnig er af- staðan til starfs á alþjóðavettvangi rædd á þess- um fundum, og þau mál, sem eru sameiginleg fyrir öll sambandsfélögin. Félagar sambandsfélaganna eru nú um 13.300. Norræna sölutæknisambandið hefur beitt sér fyrir mjög ýtarlegri rannsókn á auglýsingakostnaði á Norðurlöndunum, rannsókn, sem gerð var á sam- bærilcgum grundvelli og leiddi í ljós ýmsar merki- legar niðurstöður. Félögin beita sér fyrir námskeið- um og fræðslustarfsemi, hvert á sínu svæði, og má geta þess hér, að 79 námskeið voru haldin á Norð- urlöndunum á síðastliðnu ári, og almennir fræðslu- fundir voru alls nálægt 400. Sambandið beitir sér fyrir útgáfu á kennslubókum um sölu og auglýsinga- tækni og er ein slík kennslubók, sem ætluð er til nota í framhaldsskólum, á döfinni — undir stjórn Holbæk Ilansens prófessors. Sambandið á fulltrúa í tveimur nefndum í alþjóðaverzlunarráðinu í París, það er Commission on Advertising og Com- mission on Distribution. Norræni stjórnarfundurinn þótti takast vel að öllu Ieyti, og er það meðal annars að þakka góðum stuðningi frá verzlunarsamtökunum og Morgun- blaðinu. Á aðalfundi Sölutækni flutti Ásgeir Júlíusson mjög skemmtilegt og greinargott erindi um auglýs- ingatækni í Bandaríkjunum. — í Sölutækni eru nú 59 einstaklingar og 71 fyrirtæki eða samtals 130. Stjórn félagsins var öll endurkjörin, en hana skipa: Þorvarður J. Júlíusson, formaður, Sigurður Magn- ússon, Sigurgeir Sigurjónsson, Ásbjörn Magnússon, Kristján Arngrímsson, Kristinn Ketilsson og Svein- björn Árnason. Framkvæmdastjóri félagsins er Gísli V. Einarsson, viðskiptafræðingur. 38 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.