Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 34
Guðmundur G. Hagalín: I VESTURVIKING Nýlega kom úl bókin í VESTURVÍKING eftir Guðmund G. Hagalín. Er það ævisaga Jóns Oddssonar skráð eftir sögu hans sjálfs og fleiri heimildum. Bókin er fróðleg og skemmtileg og þar scgir frá hinum ólíkustu atburðum. Frjáls Verzlun hefur fengið leyfi til að birta tvo kafla úr bókinni og fara þeir hér á eftir. Fjallar annar um veiðiferð við Islandsstrendur, en hinn um fangabúðadvöl á eyjunni Mön. TEFLT Á TÆPASTA VAÐIÐ Nú gekk allt að óskum, og var tíðindalaust frarn til vorsins. Þá var Jón búinn að fá orð á sig sem farsæll skipstjóri og vænlegur aflamaður. Og þegar hann kom í höfn í lok maímánaðar — enn með góðan afla — kvaddi William Letten hann til fundar við sig í skrifstofu sinni. „Þetta hefur gengið vel, Oddsson," sagði hann. „Þér vitið kannski, að þeir við dokkuna eru farnir að kalla yður Íslands-Jón. Þegar þeir fara að gefa skipstjórum einhver svona viðurnefni, dokkukarl- arnir, er það merki þess, að þeir hafi unnið sér sérstakt álit, enda má það með yður. Einkanlega þykir mér vænt um, að þér eruð ekki bara afla- maður, heldur að sama skapi sparneytinn og vand- látur á meðferð aflans.“ Jón vissi ckki, hvert gantli maðurinn stefndi, en þakkaði honum Iofið. Svo hélt þá William Letten áfram: „Nú fer skipstjórinn á Premier á nýjasta skipið okkar. Hvernig litist yður á að verða eftirmaður hans?“ Jón varð orðlaus af undrun og gleði. Pétur Jen- sen fékk ckki skipstjórn á Premicr fyrr en hann var búinn að stjórna Volante í tvö ár, enda Premier annað stærsta og nýjasta skip Atlas. En Jón rank- aði þó fljótlega við sér og þakkaði gamla manninum hjartanlega og virðulega. Jón hafði smátt og smátt verið að velja sér há- seta, og á Premier lét hann skrá mikið mannval. Hann fiskaði líka enn betur á það skip en á Volante, og þótt hann sækti veiðarnar stundum nokkuð fast, gekk honum allt að óskum. Þó lá nærri, að dirfska hans yrði einu sinni skipi og mönnum að tjóni. Það var á öndverðri jólaföstu árið 1913. Skipið var að koma frá Englandi eftir losun og góða sölu og stefndi í kafþykkum kafaldsbyl norður með Vestfjörðum. Það var geysihvasst, en sjóar furðu smáir, og hélt því Jón áfram förinni, vildi komast norður með fjörðunum, þótt ekki væri veiðiveður, til þess að verða fljótur á þau mið, sem hann hafði hugsað sér til veiða, strax og veðrinu slotaði. Hann var sjálfur á stjórnpalli. Þegar leið á daginn, lét hann lesa á leiðarmælinn. Hann hafði haft landkenningu af Látrabjargi, og að sögn mælisins átti skipið að vera statt úti af Onundarfirði. Jón vildi gjarnan komast norður undir Grænuhlíð og liggja þar í vari, unz storminn lægði, en allt í einu komu þeir félagar, sem stóðu á stjórnpalli, auga á íshrafl á bæði borð. Jóni brá, og nú hugðist hann snúa skipinu undan og halda suður á bóginn, en veðurhæðin hafði enn aukizt, og svo var kafaldsbylurinn svartur, að varla sást nema faðmslengd út fyrir borðstokkinn. Jóni leizt því vænlegast að hætta við að vinda skipinu undan ógninni, en taka þann kost að láta reka mcð ísnum. Jón vék ekki úr stjórnklefa, og órótt var honum. Nú datt náttmyrkrið á, og gegnum öldudyninn og stormgnýinn kváðu við högg íshamranna á járn- byrðing skipsins. Oðru hverju hrutu klakaklumpar inn á þilfarið með ágjöfinni, og stundum sást glytta í ísmola, þcgar bjarmi skipsljósanna féll á typptan öldufald. Jón hugsaði með sér: Lífi sjómannsins fylgir ávallt nokkur áhætta, hjá því verður ekki komizt, og sá, sem hyggst sem allra minnstu voga, gengur hvarvetna frá með skarðan hlut, en samt sem áður hefqr þú nú teflt of djarft. Þig grunaði .34 FRJÁI.S VERZLUfí

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.