Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 26
skjóta stöðugt nýjum frjóöngum í allar áttir til
þess að fullnægja nýjum þörfum og kröfum.
Dreifibréf til auglýsinga
Ein er sú grein, sem á undanförnum árum hefur
vaxið mjög vestra, en er lítt kunn hérlendis. Það
er dreifibréfaaðferðin (Direct Mail). Auglýsingar í
öllu mögulegu formi eru sendar í pósti beint til
kaupenda ásamt persónulegu sendibréfi, undir hnit-
miðuðu eftirliti. Með þessum hætti er notaður um
1 milljarður og 800 milljónir dala árlega. Þessi
auglýsingafyrirtæki segja sem svo, að ef auglýst sé
í blöðum, tímaritum, útvarpi, sjónvarpi o. s. frv.,
þá sé maður ekki einungis að borga fyrir auglýs-
ingu .til væntalegra kaupenda heldur líka hinna,
sem auglýsingin eigi ekkert erindi til. Sem dæmi
má nefna, að auglýsing fyrir vél til þess að bora í
tennur manna á lítið erindi til annarra en tann-
lækna, og ber því að einskorða liana við þá stétt.
Þá er flett upp heimilisfangi allra tannlækna í land-
inu og þeim sent bréf ásamt litfögrum bæklingum,
vöruskrám, kortum, myndum og öðru því, sem lík-
legt þykir til þess að vekja áhuga þeirra á vélinni.
Þetta er í sumum tilfcllum forboði að heimsókn
sölumanns, sem þá á hægara með að tala við kaup-
andann, þegar búið er að undirbúa jarðveginn.
Þetta þykir ódýr aðferð, og var í upphafi gerð
fyrir þær vörur, sem ekki þoldu mikinn auglýsinga-
kostnað. Nú á dögum starfa stór fyrirtæki á þess-
um grundvelli. Ennfremur er aðferðin notuð af aug-
lýsingaskrifstofum að meira eða minna leyti. Heim-
ilisfangaskrárnar valda mestum áhyggjum, því um
40% þjóðarinnar flyzt árlega búferlum og þarf því
oft að endurnýja þær.
Dreifibréfaaðferðin (Direct Mail) hefur með sér
félagsskap, sem gefur út bækur, blöð og tímarit og
heldur uppi fræðslufundum. Einnig er rekið stórt
bókasafn í aðalstöðvunum í New York, þar sem
er að finna möppur með tcikningum, textum og
öllu tilheyrandi 2000 verðlaunuðum auglýsingalot-
um (campaigns) með yfirliti yfir tilgang, kostnað og
árangur þeirra allra. Félagsmönnum er heimilt að
ganga þar í skúffur og skápa og skoða að vild aðra
einstaka hluti cr að gagni mættu koma, og fá þá
senda heim til hálfsmánaðar ef beðið er um.
í aðalstöðvunum eru starfandi nefndir allt árið
og fræðslufundir, og er hægt að valsa þar um, hlusta
á eða taka þátt í umræðum um vandamál auglýs-
inga, undir leiðsögn kennara. Þetta er merkilegur
félagsskapur, sem hefur vaxið langt út yfir þann
ramma, sem hann var upprunalega gerður fyrir.
V öruumbúðir
Það sem hefur tekið einna mestum og stórstígust-
um framförum á undanförnum árum í Bandaríkjun-
um, og reyndar í flestum löndum heims, á sviði aug-
lýsinga er vöruumbúðagerð. Er það að verulegu
leyti sökum þess, hve kjörbúðir .hafa rutt sér til
rúms, og kaupandanum er meira í sjálfsvald sett að
velja og hafna án aðstoðar verzlunarmannsins. En
þar sem þetta er ein allra umfangsmesta grein
auglýsinga, sem krefst miklu lengri tíma en hér er
til umráða, þá vcrður að stikla á stóru.
í fyrsta lagi þetta: Hvað eru vöruumbúðir? Er
það kassi, poki, eða umbúðapappír til þess að bera
í heim það scm keypt er? Framleiðendur líta auð-
vitað misjafnlega á þetta, cn í raun og veru er
svarið ekki nema eitt: Vöruumbúðir í dag eru
tengiliður milli framleiðandans og neytandans og
bera þá þungu byrði að örva löngun til að kaupa
vöruna. Lítum svolítið nánar á tilgang og gerð
venjulegs pakka utan um einhverja vörutegund.
Ilann þarf að varðveita vcl innihald sitt, greina
frá framleiðandanum, sýna vörumerkið, gefa til
kynna innihaldið og skýra kaupandanum frá því,
hvernig eigi að nota það. Allt sem pakkinn kann
að hafa til síns ágætis fram yfir þetta, er hrein sölu-
mennska, en góð sölumennska er einmitt vcrðmæt-
asti kostur hans.
26
FRJÁLS VERZLXTN