Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 22
Wellington, höfuðborg Nýja Sjálands, er mikil hafnarborg fæddu, en þeim Iauk þó með fullum sáttum. Hafa Maoríarnir nú full borgararéttindi á öllum sviðum, enda er þá að finna í öllum stéttum. Norðurey, en svo er nyrðri aðaleyjan kölluð, er nokkru stærri en ísland og þar búa meira en % hlutar hlutar íbúanna. Þar á meðal nær allir Maorí- arnir. Nær 400 km langur skagi gengur norður úr landinu og sunnarlega á honnm er Auckland, stærsta borg Nýja Sjálands með um 370 þús. íbúa. Ilún er mikil samgöngumiðstöð, einkum fyrir sigl- ingar, en svo liggur hún einnig bezt við flugsam- göngum við umheiminn. Mikill iðnaður er í borg- inni, og nokkur kolavinnsla er í nágrenninu. Á miðri Norðurey er stórt stöðuvatn, Taupo- vatn, og er það átta sinnum stærra en Þingvalla- vatn. Vatnið stendur á hásléttu og sunnan hennar eru mörg eldfjöll, sem enn eru virk. Á hásléttunni er mikill jarðhiti, og eru þar stórir goshverir og aðrir hverir og laugar. Nú þegar er unnið þar mikið rafmagn með gufu. En í þessu landi er lítill áhugi á upphitun húsnæðis og hitaveitur því óþekktar. Waikato, lengst á landsins, rennur lir Taupovatni og eru mörg raforkuver við ána. Mikil orka kemur því frá þessu héraði. Jarðhitasvæðið, sem er stórt um sig, hefur mjög mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þykir landslag þar mjög sérkennilegt og fallegt, þótt hrjóstrugt sé, og svo koma þarna margir sér til heilsubótar. Heilsuhæli eru mörg og gufu- og leirböð þykja lækna ýmsa kvilla. Borgin Rotorua er miðstöð þessarar starfsemi. Gista hana margir útlendingar, þó að hún sé langt frá öðrum löndum. Syðst á Norðurey stendur höfuðborgin Welling- ton, er hún einnig mikil hafnarborg. Ibúarnir eru nú um 140 þús., en borgin Hutt, með um 90 þús. íbúa, cr nær samvaxin Wellington. Wellington hef- ur verið höfuðborg síðan 186.5, en áður sat stjórnin í Auckland. Fyrrnefnda borgin er nálægt miðju landsins og þótti það hagkvæmt fyrir stjórnarsetur. Aðeins 20 km eru á rnilli Norður- og Suðureyjar, 22 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.