Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.12.1960, Blaðsíða 43
bætur, því safnast þegar saman kemur, segir orðtakið, og margt smátt gjöri eitt stórt. Vor hjartans sannfæríng er, að á engu sé brýnni nauðsyn nú þegar, en að gjöra samgaungur og viðskipti í land- inu svo greið, sem framast má verða, og því höfum vér einkum ætlazt til eigi alllítils í þeirri grein. Geti þetta bráðlega lagazt eptir þörfum, þá mun, að von vorri, fé- lagsandi og framtaksemi vakna hjá þjóðinni, og hverskonar frarn- farir í öllum greinum koma með tímanum eins og af sjálfum sér. FKJÁLS VEHZLUN ÁFANGAR Páll Einarsson kaupmaður er fæddur 26. janúar 1901 að Geira- koti í Flóa. Hann stundaði í nokkur ár sjómennsku í Vest- mannaeyjum og lærði þar síðan rakaraiðn á árunum 1926—’29. Að námi loknu fiuttist Páll til Siglufjarðar og rak þar rakara- stofu — reyndar stundum tvær og þrjár yfir síldveiðitímann — til ársins 1940. Eftir að Páll settist að í Reykjavík stundaði hann fyrst rakaraiðn að Austurstræti 14, en síðan í eigin hús- næði að Snorrabraut 44. Árið 1958 stofnaði hann raftækjaverzlunina Luktina hf. í sörnu húsakynn- um, og hefur hún nú nýlega verið stækkuð. Kristján Oddsson tók um miðjan ágúst sl. við fulltrúastarfi í víxladeild Verzlunarsparisjóðs- ins. Kristján er fæddur í Reykja- vík 1. sept. 1927. Hann lauk stúdentsprófi frá M. R. 1947. Á árunurn 1950 til 1958 starfaði hann á vegum ísafoldarprent- smiðju, fyrst í skrifstofu fyrir- tækisins, en síðan sem verzlunarstjóri í Bókaverzl- un ísafoldar. í janúar 1959 réðst hann til starfa hjá Innkaupasambandi bóksala, en er nú ráðinn til Verzlunarsparisjóðsins, sem fyrr segir. Axel Sigurðsson hefur verið ráðinn verzlunarstjóri Ilíbýla- deildar Markaðsins. — Iíann er fæddur vestarlega í Vesturbæn- um 29. ágúst 1933. Lauk prófi frá Verzlunarskóla íslands 1952, vann síðan í nokkur ár í Póst- húsinu í Reykjavík, en gerðist verzlunarstjóri í Vesturveri, er það var stofnað fyrir fimm árum. Þegar hin nýja Híbýladeild Markaðsins tók til starfa í Hafnar- stræti 5, var Axel ráðinn þar sem verzlunarstjóri. í frístundum stundar hann framleiðslu á margs konar neyzluvörum úr hnetum, en hann stofnaði í vor Bamba sf. ásamt öðrum. 43

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.