Frjáls verslun - 01.12.1960, Qupperneq 18
Eg hafði dvalizt í Róm um þriggja vikna skeið,
horft á Olympíuleika, þvælzt um fornhelgar
rústir, skoðað hin glæstu söfn, og næstum verið
bráðnaður úr hita, er Celsius nam við 42° markið.
Ég var á heimleið, en hafði ákveðið að leggja
lykkju á leið mína, koma við í Vín og dveljast þar
í nokkra daga.
Lagt var af stað frá Róm um hádegi 14. sept.
með Viscountvél frá Alitalia, hinu ágæta ítalska
flugfélági. Fyrsti viðkomustaður vélarinnar var
Feneyjar. Þaðan var haldið til Múnchen og komið
til Vínar um kl. 20. Hafði ferðin tekið um sjö tíma
með öllum biðum, en til gamans má geta þess, að
ferðin frá London til Rómar hafði tekið mig 2
tíma í þotu frá Alitalia.
Ég hafði tryggt mér herbergi í góðu hóteli í
hjarta borgarinnar, og fór nú að svipast um í ná-
grenninu, eftir að hafa snætt ágætan kveldverð í
Cafe Mozart, en það kannast margir við, m. a. úr
kvikmyndinni „The Third Man“, því að bygging
sú kemur allmjög við sögu í myndinni.
Leit ég í glugga hjá nokkrum leikhúsmiðasölum,
því mig fýsti mjög að sjá, hvað fáanlegt væri af
miðurn á sýningar Ríkisóperunnar (Staatsoper). Var
ekki uppörvandi að sjá, hvað þar var útstillt, og
ég fór að óttast, að ég kæmist ekki í þessa frægu
óperu, en aðalerindi mitt í þessari fyrstu heimsókn
rninni til Vínar, var einmitt að komast þangað!
Úr þessu rættist þó, því að næstu daga tókst
mér að ná í miða á allar sýningar Staatsoper, þau
fimm kvöld, er ég dvaldist í Vín. Ekki þýðir að
treysta hótelinu við slíkar miðaútveganir, og verða
menn að eltast við hinar ýmsu miðasölur (Teater-
karten) allan liðlangan daginn, ef þeir ætla að ná
í miða í Staatsoper.
Það erfiði er þó ríkulega endurgoldið, því að
unaðslegri stundir en þær, er ég naut þessi fimm
kvöld í Staatsoper, hefi ég ekki lifað. Fór þar 'allt
saman, glæsilegt og fullkomið óperuhús, úrvalssöng-
kraftar, afbragðshljómsveit, áheyrendur, er lifðu
sig inn í hljómlistina og sköpuðu með tónlistarfólk-
inu það andrúmsloft, sem orð fá eigi lýst.
Viðfangsefnin þessi fimm kvöld voru: Aida,
Fidelio, Grímudansleikurinn , André Chénier og
ballettinn Rómeó og Júlía.
Söngvararnir voru ekki af lakara taginu. Má þar
18
FRJÁLS VERZLUN