Frjáls verslun - 01.12.1960, Page 24
Ásgeir Júlíusson teiknari:
TÖFRASPIL AUGLÝSINCANNA
Þar sem skýjakljúfarnir gnæfa við himin og
gluggaræstarinn sinnir starfi sínu 60 hæðum fyrir
ofan svart asfalt götunnar, lítandi út eins og lítil
skríðandi padda á steingráum húsveggnum fyrir
sakir fjarlægðar við gangandi fólk, þar sem neðan-
jarðarbrautirnar gjósa milljónum manna upp í gegn-
um göt á jörðinni, svo helzt minnir íslending á
hverina heima, þar sem söngur götunnar og gnýr
farartækja skilur aldrei við þig svefns eða vakinn,
og smýgur í gegnum heilt, hversu hátt sem þú
býrð, og mannhafið steypist yfir þig eins og íslenzk
stórhríð, og það setur að þér goig við þá tilhugsun,
að hér myndi vera auðvelt að verða úti innan um
hvíta menn og svarta, rauða og gula, þar sem
landsfólkið uppgötvar allt í einu að mitt á meðal
þess hefur í áraraðir lifað samfélag 9 þúsund
sálna, sem trúir því enn þann dag í dag, að
jörðin sé flöt og verður frægt, þar sem það stærsta
býr við hliðina á hinu smæsta og andstæðunum
slær sarnan eins og logandi tundri, þar sem ferða-
maður sezt niður inni á lítilli krá mitt í þessu iðandi
töfraspili og biður um einn bjór til þess að jafna
sig og svala þorstanum, og fær í aukagetu vin-
gjarnlega smáfyndni frá þjóninum; í þessu undar-
lega og stórkostlega landi — Bandaríkjunum —
skipar auglýsingin gullroðið hásæti.
Því þegar þú litur upp frá bjórglasinu verður þú
var við hana allt í kringum þig í ótal mynduin:
Seyðandi auglýsingaspjöld á veggjum, listrænir aug-
lýsingapésar á borðurn, jafnvcl gólfið er ekki alls
staðar látið ónotað eða hurðir og gluggar. Þér eru
réttir nýtilegir hlutir, sem þú mátt taka hcim með
þér endurgjaldslaust; þó ekki án þess að lesa töfr-
andi setningar, sem á þeim standa um gæði þessa
eða hins, og á meðan glymur útvarp með auglýsing-
um eða þér birtist sjónvarpið í allri sinni dýrð, þar
sem mitt á meðal fræðandi eða æsandi efnis stendur
allt í einu fyrir framan jiig töfrandi fögur stiilka
og bendir þér á að nota ABC svitameðal eða spyr
j)ig — allt að því einslega — hvort þér hafi ekki
láðst að fá J)ér eins og einn bauk af mcgrunarpill-
um. Því næst ákaflega trúverðugur og vel klæddur
maður, sem trúir þér fyrir ])ví, að menn raki sig
hlæjandi með Bar-Ber rakvélum, og ekki nóg með
það: hann rakar sig hlæjandi fyrir framan þig.
Ef þú ert íslendingur, og þar að auki vaxinn
eins og þráðarspotti, og hefur rakað ])ig með söniu
rakvélinni síðastliðin tuttugu ár, og ckki hugsað
þér að skipta, þá flyturðu þig inn á næsta greiða-
sölustað, en það gildir einu, — auglýsingin eltir þig,
vingjarnleg og elskuleg, stundum dálítið ráðrík. Þú
færð ekki umflúið hana í þessu landi hvernig sem
þú ferð að.
Auglýsingar grípa meira inn í líf fólksins í Banda-
ríkjunum en í nokkru öðru landi veraldar, og jafn-
vel meira en flesta grunar; hefur áhrif á athafnir
þess og kaupskap. Margir liafa andúð á þeim, en
kaupa þó vörur sínar undir áhrifum frá þeim, án
24
FRJÁLS VERZLUN