Frjáls verslun - 01.12.1960, Qupperneq 31
Atlas, 400 tonna ilotkrani, aS koma iyrir borturni í Marakaíbó-vatni í Venezúela
skyldunni, en nam verkfræði og var einn af braut-
ryðjendum olíufélagsins og síðar framkvæmdastjóri
og stjórnarformaður.
John H. Loudon nam lögfræði, en á yngri árum
ferðaðist hann um Evrópu með foreldrum sínum.
Faðir hans vildi að hann færi í utanríkisþjónust-
una, en sjálfur réði hann sig til Shell. Hann vann
rúmt ár í Venezuela, en sneri þá heim og kvæntist
skólasystur sinni. Síðan vann hann í Boston, Texas
og Los Angelcs og hækkaði smátt og smátt í tign-
inni innan samsteypunnar.
Hann varð aðstoðarframkvæmdastjóri í Caracas
1938 og forstjóri í Venezuela 1944, aðeins 38 ára
gamall. Hann fylgdist með þróun þjóðernishreyf-
ingar þar í landi og breytti stefnu félagsins jtannig,
að hún varð vingjarnlegri og frjálslegri. Fyrir
frammistöðu sína var hann valinn í „innsta ráðið“
og kom til London 1947. Hann vann að uppbygg-
ingu félagsins eftir styrjöldina og samræmingu fram-
leiðslu og olíuleitar. Árið 1957 tók hann við stjórn
samsteypunnar.
í dag ræður Loudon yfir 250.000 starfsmönnum
í „ríki“, senr nær yfir vinnslustöðvar í 17 löndum,
47 olíuhreinsunarstöðvar, stærsta olíuflutninga-
skipaflota í heimi (551 skip) og hlutafjármagn í
olíufélögum 76 landa. Ef til vill er félagasamsteypan
eitt mesta alþjóðafyrirtæki í heirni, og hefir John
Loudon átt mikinn þátt í að gera hana að því
veldi. Þegar fjárhagsáætlun var síðast .afgreidd
fyrir samsteypuna, gerði Svisslendingur grein fyrir
framleiðslunni, Frakki ræddi markaðsmál, Banda-
ríkjamaður fjármál og Ilollendingur um olíuleit.
Fyrir samræmingunni stóð Breti. Fyrir styrjöldina
voru aðeins fáir „útlendingar“ í þjónustu samsteyp-
unnar, og voru þeir valdir „eftir því hve mikið þeir
líktust Evrópumönnum“.
Loudon sá fyrir að þjóðerniskennd myndi ná
sterkum tökum á þjóðum heimsins eftir styrjöld-
FRJÁLS VERZLUN
31