Frjáls verslun - 01.12.1960, Side 32
ina og hófst því lianda um að selja framkvæmda-
stjórn í hendur innfæddum, þar til stefnu fyrir-
tækisins hafði verið gjörbreytt. Arlega eyðir félagið
um 7,4 millj. Bandaríkjadollara í að mennta hæfi-
leikamenn í löndum, þar sem það hefir rekstur.
Sextíu ungir forustumcnn af 27 þjóðernum starfa
um víða veröld.
Forustumenn samsteypunnar vilja, að starfsfólk-
ið gangi með merki félagsins til að sýna alþjóðlega
samstöðu. Illutdrægni innan samsteypunnar er
stranglega bönnuð. Því til skýringar er oft sögð sú
saga, að þegar maður nokkur í Egyptalandi neit-
aði að vera í sama skrifstofuherbergi og Egypti,
sem nýlega var búið að hækka í tigninni, sagði
framkvæmdastjórinn aðeins: „Það fer olíuskip á
morgun. Þér farið með því.“
Þessi breytta stefna Shell hefir aldrei komið sér
betur en fyrst eftir heimsstyrjöldina síðari, þegar
allt logaði í þjóðerniskennd meðal hinna gömlu
nýlendna. Þegar Indónesía skildi við Holland, tóku
Bretar og Indónesar við störfum Hollendinga þar.
Hollendingar tóku við af Bretum í Egyptalandi,
þegar þeir síðarnefndu voru óvinsælir þar eftir
Súezdeiluna. Bretar og aðrir voru sendir til Túnis,
Marokkó og Alsír í stað hinna óvinsælu Frakka.
Efnaiðnaðurinn
Auk aðstöðu og traustra markaða um víða ver-
öld hefir samsteypan það fram yfir alla aðra hlið-
stæða aðila, að hún stendur fremst á sviði efna-
iðnaðar, en þá starfsemi hóf Shell þegar árið 1928.
Af heildarsölunni er 9% efnavörur, og samsteypan
er heimsins stærsti seljandi efnavara í þágu land-
búnaðar, svo og skordýraeiturs. Ennfremur er hún
stærsti framleiðandi þvotta- og hreinsiefna utan
Bandaríkjanna. Á sviði efnaiðnaðar eru möguleik-
ar til aukningar taldir nærri ótakmarkaðir. Meira
en helmingur slíkra vara er unninn úr olíu eða í
sambandi við olíuvinnslu. Þess er vænzt, að árið
1965 hafi framleiðsla á þcssu sviði aukizt um 65%,
miðað við framleiðsluna í dag.
Olíuhreinsunarstöð og iðjuver samsteypunnar,
Pernis, nálægt Rotterdam í Ilollandi, er voldugur
minnisvarði á sviði efnarannsókna og framleiðslu,
en til framkvæmda þar hefir verið varið 600
milljónum Bandaríkjadollara. Flestar eru bygg-
ingar þessar reistar eftir styrjöldina, en hér er um
að ræða mesta fyrirtæki samsteypunnar og eitt
stærsta iðjuver í Evrópu. Stöðin tekur við um 16
milljón lestum af hráolíu á ári og framleiðir um
600 vörutegundir. Svo mikið af vélum stöðvarinnar
er sjálfvirkt, að á nóttunni halda aðeins 500 starfs-
menn henni gangandi. En nú er stefna samsteyp-
unnar að byggja meðalstórar olíuhreinsunarstöðvar,
cnda búizt við að eftirspurnin aukist meira í Afríku
en Evrópu, þegar fram líða stundir.
Verðlækkun?
Þeirri spurningu er oft varpað fram, hvers vcgna
verðlag á benzíni og olíum lækki ekki eins og sam-
kcppnin er mikil og framboðið gífurlegt. Ástæðan
til þess cr m. a. samstaða stóru olíufélaganna um
að hamla á móti verðlækkun á olíuvörum, því að
slík lækkun myndi að sjálfsögðu minnka hagnað
þeirra. Kenning þeirra er sú, að ef eitt félaganna
lækkar verðlag almcnnt verði öll hin að koma á
eftir, og enginn hagnast á slíkri samkeppni að lok-
um, ekki heldur kaupendur varanna. Loudon segir:
„Það er fráleitt að byggja aðild sína að markaðn-
um á verðlækkunum. Vaxtarmöguleikarnir eru
fólgnir í því að byggja olíuleiðslur og afgreiðslu-
stöðvar og auka framleiðslu og geymslurými."
Árangurinn verður sá sami og hjá bíla- og vind-
lingaiðnaðinum, stóru olíufélögin byggja samkeppni
sína sjaldnast á verðgrundvelli. En þau leggja
áherzlu á að vera samkeppnisfær þrátt fyrir sam-
heldni. Tim Wilkinson, einn af framkvæmdastjórum
Shell segir: „Við getum allir verið beztu vinir og
félagar, þegar við erum saman, en eftir að við
kveðjumst förum við í skrifstofurnar og bítumst
eins og hægt er.“ Þegar ágóði fer minnkandi, beinist
ásóknin gegn keppinaut gjarnan að því að gera
honum sem allra dýrast að komast inn á nýjan
markað. Þegar Standard Oil fór inn á gamla Shell-
markaðinn í Marokkó eftir styrjöldina, gerði sam-
steypan allt, sem í hennar valdi stóð, til að yfir-
bjóða lóðaverð fyrir afgreiðslustöðvar og þannig
halda aftur af Standard Oil.
Stóru olíufélögin neita því, að leynimakk sé um
32
FRJÁLS VERZLUN