Frjáls verslun - 01.12.1960, Síða 33
ákvörðun verðlags á benzíni og halda því fram,
að verðlag sé jafnt hjá öllum af því, að þeir hafi
jafnan aðgang að sömu hráolíusvæðum og greiði
um það bil sama kostnað við að koma olíunni úr
lindunum í dælurnar. En fáir geta sagt verðlags-
jöfrunum stríð á hendur. Óháð félög geta stundum
neytt stóru félögin til að lækka verð á bensíni,
eins og gert var nýlega í Vestur-Þýzkalandi. En
þau hafa ekki aðstöðu úli um allan heim til þess
að mæta sókn hinna stóru félaga og geta sjaldnast
boðið viðskiptamönnum sínum ótakmarkað magn
af olíu við sama verði. Þess vegna eru stóru við-
skiptamennirnir háðir stóru olíufélögunum og verða
að kaupa olíu frá þeim á þeirra verði.
Þar að auki er fjöldi aðila, sem hefur hagsmuna
að gæta og beitir sér gegn væntanlegum verðlækk-
unum. Benzínsala er t. d. mjög hátt sköttuð. í
Bandaríkjunum greiðir neytandinn S1 cent fyrir
hvert gallon af benzíni og þar af um 10 cent í skatt.
Sjálfstæð fyrirtæki í Bandaríkjunum, en þar í landi
er olíuframleiðslan dýrust, þvinguðu ríkisstjórnina
til að vernda sig gegn ódýrum innflutningi með
því að hefta hann. Þar eru því stofnanir, sem gæta
jafnvægis (sem hefur komið í veg fyrir raunverulegt
offramboð í Bandaríkjunum) og hakla þannig að
vissu leyti verðlaginu uppi.
En enginn veit, hversu lengi olíuiðnaðurinn get-
ur haldið verðlaginu uppi, þegar við mikið fram-
boð og ákefð óháðra félaga cr að etja. Reyndur
olíumaður frá Mið-Austurlöndum spáir því, að inn-
an tveggja ára verði annaðhvort framleiðslan
minnkuð mikið eða verðhrun skelli yfir.
ÁFANGAR
Ólafur Stefánsson var settur
fulltrúi í fjármálaráðuneytinu í
ágúst sl. Ólafur er fæddur 17. júlí
1931 í Kalmanstungu í Mýra-
sýslu. Hann lauk stúdentsprófi
frá M. A. árið 19.52 og kandidats-
prófi í viðskiptafræðum frá H.
í. vorið 1955. Hann dvaldist síð-
an eitt ár við framhaldsnám við
„University of Chicago“ í Bandaríkjunum. Haustið
1956 hóf hann svo nám í lögfræði við H. í. og lauk
embættisprófi sl. vor. Ólafur starfaði allmikið í hag-
fræðideild Landsbanka íslands árin 1957—’59. Loks
hefur Ólafur tekið drjúgan þátt í félagsmálum.
árinu 1948, þar
hinn 1. okt sl.
Pétur Ottesen hefur verið ráð-
inn sölustjóri hjá Hilmi hf.,
Reykjavík. Annast hann sölu á
prentvinnu og fyrirgreiðslu í
prentdeild fyrirtækisins. Pétur er
fæddur í Reykjavík 22. júlí 1919.
Hann hefur starfað hjá Stein-
dórsprenti hf. við skrifstofustörf
síðan 1936 og sem fulltrúi frá
til hann tók við núverandi starfi
Notkun olíunnar er heiminum nctuðsyn
Hversu lengi heldur framboðið áfram að aukast?
A. m. k. 10 ár segja margir olíumenn. En John
Loudon er bjartsýnn og segir: „Persónulega er ég
hvergi smeykur. Yfirframboðið jafnar sig með tím-
anum. Heimurinn mun þurfa á sífellt meiri olíu
að halda.“
Sú samkeppni, sem enginn virðist óttast, eru
nýir orkugjafar. Þótt gas verði jafnan mjög mikils-
vert hafa olíufélögin góða aðstöðu á því sviði. Ekki
er búizt við að kjarnorkan verði samkeppnisfær fyrr
en eftir mörg ár. Raunar fagna margir olíumenn
kjarnorkunni sem væntanlegum orkugjafa, sem hag-
kvæmt verði að hagnýta. Jafnvel nú, þegar offram-
boð er svo mikið, telja þeir sig sjá fyrir, að olíuforði
jarðarinnar muni ekki endast til þeirra þarfa, sem
framtíðin mun krefjast. (Þýtt og stytt úr Time.)
Jóhannes Jörundsson var ráð-
inn auglýsingastjóri Vikunnar 1.
október sl. Jóhannes er fæddur
í Iírísey 1931. IJann stundaði
kennslu í teikningu í skólum í
Reykjavík 1952—’53 en réðst til
Sambands ísl. samvinnufélaga
1954 og starfaði hjá skipadeild
og síðan fjármáladeild þess til
ársins 1958. Þá tók hann við framkvæmdastjórn
skrifstofu Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í
Reykjavík, og starfaði þar til 1. júlí í ár. Frá 1. júlí
til 1. október vann hann á ný hjá fjármáladeild
S. í. S. Jóhannes hefur lagt töluverða stund á
auglýsingagerð og má ætla að nokkuð muni að hon-
um kveða í þessu nýja starfi.
rnJÁLs yERZiiUN
33