Frjáls verslun - 01.12.1960, Page 44
Kona var að aka bíl eftir sveitavegi, þegar hún
sá nokkra viðgerðarmenn uppi í símastaurum.
„Bjánar!“ hrópaði hún til vinkonu sinnar, „þeir
hljóta að halda, að ég hafi aldrei keyrt áður.“
★
„Góða frú, getið þér ekki gefið mér gamlan
frakka?“
„Já, en þessi, sem þér eruð í er svo til nýr.“
„Ég veit það,“ svaraði betlarinn, „en liann er
líka alveg að eyðileggja starf mitt.“
★
„Hvað er langt héðan til stöðvarinnar?“
„Það er aðeins fimm mínútna gangur ef þér flýt-
ið yður og hlaupið.“
★
Nokkrar konur komu inn í strætisvagn, þar sem
öll sæti voru setin. Bílstjórinn tók eftir manni í sæt-
inu fyrir aftan hann, sem virtist sofandi. Hann
varð hræddur um, að maðurinn myndi missa af
áfangastað sínum og ýtti því við honum og sagði:
„Vaknið þér!“
„Ég var ekki sofandi,“ mótmælti maðurinn.
„Ekki sofandi? En þér voruð þó með lokuð
augun.“
„Ég veit það, en ég þoli ekki að sjá konur standa
í strætisvagni.“
Bílstjóri, sem ók með 120 km hraða á þjóðvegi
var stöðvaður af lögregluþjóni. „Ók ég of hratt?“
spurði bílstjórinn afsakandi.
„Nei, alls ekki,“ svaraði lögregluþjónninn. „Þér
fluguð of lágt.“
★
Gestur (snemma morguns, eftir að hafa dvalizt
yfir helgi hjá kunningjafólki): „Bílstjóri, þér verðið
að gæta þess, að ég missi ekki af lestinni.“
Bílstjórinn: „Engin hætta herra. IJúsbóndinn
hérna sagði, að ef ég ekki gætti þess, þá myndi hann
aldrei skipta við mig framar.“
★
Frúin: „Ég hélt, að þér mynduð skammast yðar
fyrir að betla í þessu hverfi.“
Betlarinn: „Verið þér ekki að afsaka þetta, ég liefi
séð það verra.“
★
Konan: „Hefur yður ekki einhverntíma verið
boðin vinna?“
Flakkarinn: „Jú, einu sinni, en að öðru leyti liefi
ég ekki mætt neinu nema góðvild.“
„Sástu hvað hún varð vandrœðaleg, þegar ég sagði, að við
ækjum í PolmoiiVe?"
44
FRJÁLS VERZLUN