Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1961, Qupperneq 50

Frjáls verslun - 01.12.1961, Qupperneq 50
verður Vart við drykkjuskap en áður var bæði í kauptúnum og upp til sveita. Sú skoðun er nú búin að festa rætur í almennings- álitinu, að minkun sé hverjum manni að láta sjá sig ölvaðan. Skoðanir reglunnar í vínsölu „hafa algjörlega sigrað í héröðum og kauptúnum, þar sem þriðjungur allra landsmanna á heima“. Mikið er flutt af vínföngum til lands- ins enn, þegar miðað cr við hvern einstakan íbúa landsins. A sjö- unda áratug aldarinnar koinu meira en tíu pottar (10,75) af áfengi, mest brennivíni, á hvert mannsbarn í landinu. Sést bezt á því, hvelíkur voðadrykkjuskapur það hefir verið, ]>egar það er liug- leitt, að í rauninni kemur þetta alt á fullorðna karlmenn, og ])ó ekki nærri því alla, ])ví aldrei hafa allir drukkið. Nú segja menn að koma muni tæpum hálfum þriðja potti (2,32) minna af áfengi á hvern mann. Verkefnið er þess vegna enn nóg, meðan hálfur ní- undi pottur (8,43) kemur á hvert mannsbarn í landinu. En vonandi er nú bindindishreyfingin komin á svo góðan rekspöl, að framfarir í rénum drykkjuskaparósómans verði tiltölulega meiri í nálægri framtíð. Það er ósköp um það að hugsa, að svo t'átækt land skuli eyða jafnmiklu ógrynni fjár til áfengiskaupa. En því miðnr hafa höfðingjarnir lengi gengið þar á undan og alþýða fylgt illu cftir- dæmi þeirra. Nú eru þeir líka einna tregastir til að leggja niður þann ljóta sið. Þó hafa ýmsir þeirra gjörst liinir mestu bindind- isfrömuðir og hefir á engum manni úr hópi hinna lærðu manna meira borið í starfsemi Good-templara- félagsins en revísor landsreikning- anna, Indriða Einarssyni, leikrita- skáldinu. Iíann er ötull maður og í þessu efni hinn einbeittasti; hann hcfir farið fótgangandi jafnvel um hávetur langar Ieiðir til að flytja bindindisprédikanir sínar og oft og einatt orðið mikið ágengt. Er það sannarlega sjaldgæft á íslandi, svo sjaldgæft, að eg ætla það eins dæmi, að nokkur hafi svo brennandi áhuga á einhverju vel- felferðarmáli, að hann leggi fús- lega og hvað eftir annað annað cins á sig. Enda er því ekki að neita, að Good-templarafélagið er orðið stórveldi í landinu, sem sést bezt á því, að á síðasta stórstúku- þingi í Reykjavík sátu ekki færri en áttatíu erindrekar og embættis- menn af öllu landinu fjóra daga samfleytt til að ræða mál sin. Von- andi er, að bráðum verði áfengis- sala og aðflutningur áfengis bann- að með lögum, og ætti ísland að standa þar betur að vígi en nokk- urt annað land sökum þess, hve afskekt það er. Bindindismennirnir sýna fram á, að mannsæfin lengist., þegar hætt er að neyta áfengis. En læknarnir vilja eiga sinn skerf af þeim heiðri, ])egar unt er að sýna fram á, að menn lifi Icngur nú en á einhverju undanförnu tímabili. Eyrir 25 ár- um voru að eins 10 læknar á land- inu. Nú eru þeir orðnir fram undir 40 fyrir utan landlækninn. Það er stórkostleg fjölgun, og þykir mörg- um nóg um, af því að tala em- bættismanna var áður svo mikil. Læknarnir eru flestir hæfir og myndarlegir menn og standa að líkindum ekki embættisbræðrum sínum í öðrum löndum neitt að baki. Menn staðhæfa nú, að mannsæfin sé að lengjast á íslandi og það töluvert, að menn lifi nú að meðaltali einum 20 árum leng- ur en gerðist framan af öldinni, og þakka það þægilegri lífskjörum, betri híbýlum, aukinni þekking og betri læknishjálp. Þótt þetta reyndist of há tala, þá er enginn efi á því, að hún er gleðilegur vott- ur um töluverða framför í lífi þjóðarinnar. Þótt framfarirnar séu engan veginn stórkostlegar og oft beri fremur lítið á þeim á yfirborðinu, eru þær þó býsna-miklar, þegar far- ið er nákvæmlega að gæta að öllu. Þegar maður ferðast um landið, verður maður var við tvo strauma hvorn öðrum gagnstæðan, sem úr verður eins konar hringiða í þjóð- lífinu og halda því vakandi. Annar þeirra hefir upptök sín í óþreyj- unni, sem hjarta mannsins fyllir, þegar honum finst hann vera að bíða Iægri hlut í lífsbaráttunni. Iíann sér engan leið út úr vand- ræðunum. Fyrir honum cru öll sund lokuð. En hann langar til að lifa og komast áfram og liugs- ar með sér: Er ekki skynsamlegra fyrir mig að rífa mig upp og hefja baráttuna fyrir lífi mínu á ein- hverjum öðrum stað í heiminum, þar sem lífsskilyrðin eru hægri og auðveldari og náttúran ekki jafn-óviðráðanleg, en að halda henni áfram hér, þar sem ég ræð ckki við neitt og er hvorki sjálfum mér né öðrum til neins gagns? Það keniur ekki að eins fvrir á íslandi, að þessi óþreyja grípur einstaka mann. Það kemur fyrir í öllum löndum heimsins og er algjörlega mannlegt. Frá sjónar- miði hinna, sem aldrci kcmnr slíkt til hugar, kann ])etta að vera ókarlmannleg niðurstaða; en karl- mennskulundin getur gugnað hjá oss öllum og því er varlega dæm- andi. Þess vegna er naumast til nokkurs um það að fást, nema láta hvern sjálfráðan. Það er líka fremur lítið gagn að halda því hjúinu þvernauðugu, sem orðið er óánægt í vistinni. Ég veit ekki annað en það sé talið hið mesta happ af öllum vitrum mönnum í flestum ef ekki öllum löndum 46 FRJÁLS VF.RZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.