Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 47
FRJALS VERZLUN
39
minnisvarði um Finsen skammt
frá húsinu, enda telja Færeyingar
hann meðal sinna merkustu sona.
f Þórshöfn stendur líka minnis-
varði um konungskomuna 1874,
en Kristján níundi varð fyrstur
hinna dönsku konunga til að
heimsækja nýlendur sínar í Fær-
eyjum og á fslandi. Og í grasgarð-
inum í Þórshöfn er minnismerki
um færeyska sjómenn, sem fór-
ust í heimsstyrjöldinni síðari. Og
enginn má láta hjá líða að koma
á „Skansin", sem er gamalt virki,
er Mogens Hejnesoen, þjóðhetja
Færeyinga frá 16. öld, lét reisa.
Frá Þórshöfn má aka til Kirkju-
bæjar á vestanverðri Straumey,
en það er einn fegursti staður á
öllum Færeyjum. Þar bjuggu
biskupar á miðöldum og enn má
sjá þar rústir Magnúsarkirkjunn-
ar og hinnar þúsund ára gömlu
Ólafskirkju, sem enn er notuð sem
safnaðarkirkja.
LAX- OG
SILUNGS VEIÐI
í sjónum í kringum Færeyjar
eru gjöful fiskimið eins og flestir
kannast við. En uppi á eyjunum
sjálfum er líka óvenjumikil veiði-
von í ám og vötnum. Urriða er að
finna í næstum öllum 40 helztu
stöðuvötnum á Færeyjum. Á Vog-
ey, þar sem flugvöllur Færeyinga
er staðsettur, er stærsta vatnið á
eyjunum, Sörvogsvatn, um þriggja
kílómetra langt og 600 metra
breitt. Nokkru norðar á Vogey er
næststærsta vatnið, Fjallavatn, —
og tvö smærri. Á straumey eru
14 veiðivötn, þar á meðal þrjú,
sem eru virkjuð fyrir raforku-
verið við Vestmannahöfn. Á Aust-
urey eru sex vötn, jafnmörg á
Sandey og 12 á Suðurey.
Flest stöðuvötn í Færeyjum eru
í allmikilli hæð, milli 250 og 350
metra yfir sjávarmáli, og til þess
að komast að þeim verða menn
að leggja á sig allerfiða fjallgöngu
í sumum tilvikum. En uppi við
vötnin er einstæð náttúrufegurð,
sem vel hæfir veiðimanninum.
Vegna þess. hve hátt vötnin liggja,
er fiskistofninn í þeim gamall og
traustur, því að nýr fiskur hefur
ekki getað gengið í þau frá sjó-
Raunar var fiskur fyrst fluttur í
mörg þessara vatna fyrr á öldum,
og þarna hrygndi hann í ám, sem
í vötnin falla. Umhverfi vatnanna
er einkanlega sandur og klettar,
þar eru engin tré né runnar, svo
að eðlilegast er að reyna fluguna.
Vatnið er tært og venjulega held-
ur fiskurinn sig nærri landi, og
því er vísara að fara gætilega
meðfram bökkunum til að styggja
hann ekki. Vötnin eru bæði djúp
og laus við gróður, svo að spúnn-
inn getur líka reynzt vel.
Stærð fisksins er allmisjöfn.
Oftast er hann beztur með tilliti
til stærðar og gæða í þeim vötn-
um, sem hæst liggja. Meðalþyngd
er um 1 pund, en fjögurra punda
fiskur er líka algengur. Flestir
veiðimenn sækjast eftir sjóbirt-
ingi, þegar hann gengur í árnar
í lok júní eða skömmu áður. Sjó-
birtingur gengur í næstum allar
ár á eyjunum og ber talsvert á
honum í Ijósaskiptunum. Þá er
líka gott tækifæri til að renna fyr-
ir hann — annað hvort flugu eða
spún.
Veiði er leyfð í öllum ánum.
Sjóbirtingur gengur aðeins í tvö
af stöðuvötnunum, Sandsvatn á
Sandey og Saksunnarvatn á
Straumey, norðanverðri. í þessum
vötnum er stærsta sjóbirtinginn
að fá. Átta punda fiskur er ekki
óalgengur, en sá stærsti, sem
veiðzt hefur í Saksunnarvatni, var
14 pund.
ÓDÝR
VEIÐILEYFI
í Færeyjum hafa verið starf-
andi samtök stangveiðimanna í 20
ár og hafa þau unnið ötullega að
því að bæta aðstöðu fyrir veiði-
menn á eyjunum. Með aðstoð
stjórnvaldanna hafa verið gerðir
stigar fyrir göngufiskinn í ánum
og klakstöðvum komið á fót og
eru lax og silungur nú víða rækt-
aðir. Laxinn var til skamms tíma
óþekktur í Færeyjum, en á mörg-
um árum hefur tekizt að rækta
laxastofn í Saksunni og í Skála-
botni á Austurey. Vegur laxinn
yfirleitt þrjú til 10 pund eða þar
yfir.
Landeigendur á Færeyjum eiga
sjálfir öll veiðiréttindi og geta að-
komumenn fengið veiðileyfi fyrir
25—120 íslenzkar krónur fyrir
stöngina á dag. Veiði er leyfð í
vötnunum allan ársins hring, en
í ánum er hún bundin við tímabil-
ið 1. maí til 31. ágúst.
Netaveiði er stranglega bönnuð
í færeyskum ám og vötnum enda
hefur sú ráðstöfun átt hvað mest-
an þátt í því, að Færeyingum hef-
ur tekizt að rækta stóran stofn
laxfisks og silungs.
í Færeyjum er hægur vandi að
fá inni á þokkalegum gististöðum
gegn hóflegu verði. í Þórshöfn eru
þrjú gistihús, sem samanlagt geta
tekið á móti liðlega 200 gestum.
Þeirra stærst er Hótel Hafnia, sem
er hið vistlegasta eftir gagngerð-
ar endurbætur. Er fyllilega hægt
að mæla með Færeyjaferð fyrir
þá, sem vilja kanna nýjar slóðir,
því að frændur vorir Færeyingar
munu taka á móti gestum af al-
kunnri vinsemd.
ÁPRENTAÐIR
plast-
BURÐARPOKAR
FYRIR
VERZLUNAR
OG ÞJÓNUSTU
FYRIRTÆKI
PLASTPRENT H/F.
GRENSÁSVEG 7