Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 49
FRJAL3 VERZLUN
41
SLYSATRYGGINGAR
FERÐAMANNA
Sumarleyíistíminn er hafinn.
Einstaklingar, hjón eða heilar fjöl-
skyldur leggja land undir fót til
að dvelja í leyfi sínu á þeim stað,
er hugurinn stefnir til og ákveð-
inn er oft löngu fyrirfram. Á ýmsu
veltur, hvort menn ferðast um sitt
eigið land, eða gera víðreist til
útlanda.
Hvert sem halda skal, þá er
hverjum þeim, sem leggur land
undir fót, hollt að hyggja að ör-
yggi sínu, og leggja ekki upp í
ferðalag án þess að vera slysa-
tryggður. Slysin gera aldrei boð
á undan sér. Þau eiga sér stað
skyndilega og óvænt og enginn
veit, hver fyrir þeim verður. All-
ir, sem ferðast, leggja af stað með
góðum ásetningi og heita því að
fara varlega, en þó góður ásetn-
ingur sé nauðsynlegt veganesti og
fylli ferðamanninn öryggiskennd,
þá ætti enginn maður að leggja af
stað i ferðalag án þess að kaupa
sér persónulega slysatryggingu.
Öll íslenzku tryggingafélögin
bjóða upp á ferðaslysatryggingar,
sem byggðar eru upp á þann hátt,
að bætur greiðast við dauða hins
tryggða af slysförum, varanlega
örorku af slysförum eða dagpen-
inga vegna slyss, sem veldur tíma-
bundnum starfsorkumissi.
Það er algengast hér á landi,
að dánarbætur og bætur fyrir
100% varanlega örorku séu jafn-
háar og dagpeningar, miðaðir við
¥2% á viku af dánarbótaupphæð-
inni.
Til að gefa hugmynd um, hvað
slík tryggingavernd kostar hinn
tryggða, skal hér tekið dæmi um
500 þúsund króna tryggingu, mið-
að við ofangreinda skilmála.
Tr.tímabil Iðgj. m/sölusk. og stimpilgjaldi
7 dagar kr. 205.—
10 dagar — 230,—
14 dagar — 265,—
21 dagur — 325,—
30 dagar — 385,—
60 dagar — 580,—
Á þessum tölum má sjá, að
kostnaðurinn við að tryggja ör-
yggi sitt og sinna er hverfandi.
Einnig má geta þess, að þeir,
sem óska, geta nú fengið takmark-
aða sjúkratryggingu til viðbótar
ferðaslysatryggingu sinni og mið-
ast bæturnar við þann kostnað,
sem sjúkrasamlag greiðir ekki.
Bætur takmarkast þó við 10% af
örorkutryggingarupphæðinni.
HOLLENZK
GÆÐAVARA
VERÐ VIÐ
ALLRA HÆFI
ffi
llllll —
FERÐA-UTVORP
SEGULBOND
PLOTUSPILARAR
KÆLISKÁPAR
Sölustaðir:
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT
Þjónusta:
RADlÓSTOFAN, ÓÐINSGÖTU 4
RAFTÆKJADEILD — HAFNARSTRÆTI 23
SlMI 18395