Frjáls verslun - 01.05.1969, Page 52
44
FRJALS VERZLUN
tVFinÖí
Heimsþekkt hótelpostulín með yíir 30 ára
reynslu hér á landi.
MATSÖLUSTAÐIR
HÓTEL
VEITINGAHÚS
FÉLAGSHEIMILI
SJÚKRAHÚS
SKIPAFÉLÖG
um allt land staðíesta langa og góða endingu.
Leitið upplýsinga hjá umboðsmönnum:
JÓH. ÓLHPSSON & CO.
HVERFISGÖTU 18 — SlMI: 11632 — REYKJAVlK
Á GOLFVÖLLINN
í ferðaáætlun Eimskipafélags-
ins er einnig gerð grein fyrir sér-
stökum ferðum fyrir golfáhuga-
menn til Leith, og þar er einnig
um að ræða 13 daga ferð. Verður
þátttakendum í ferðinni ekið þeg-
ar eftir komuna til Leith til North-
dervick, gist þar á hóteli í fjóra
daga, en í þeim bæ eru prýðis-
góðir golfvellir, þar sem áhuga-
menn geta iðkað íþrótt sína og
komizt í kynni við aðra golfleik-
ara. Verð í þessum ferðum er frá
12.330,00 krónum upp í 19.200,00
krónur.
Það telst til nýjunga í sambandi
við IT-ferðir Eimskipafélags ís-
lands. að nú er fólki boðið að ferð-
ast aðra leiðina með Gullfossi, en
hina leiðina með þotu Flugfélags
fslands.
HÓPFERÐ MEÐ GULLFOSSI
Gullfoss fór í fyrstu sumarferð
sína hinn 14. maí, það var svo-
köiluð vorferð til Lundúna. Am-
sterdam, Hamborgar og Kaup-
mannahafnar, Leith og aftur heim
til Reykjavíkur. Var þetta 20 daga
ferð. Skemmtiferðir sem þessi
njóta mikilla vinsælda, enda vili
fólk gjarnan ferðast með skipinu
fram og til baka, spara sér hótel-
kostnað erlendis, búa um borð rétt
eins og það sé heima hjá sér.
Þar sem skipið kemur við er-
lendis, gefst farþegum kostur á
margs konar skoðunarferðum og
er íslenzkur leiðsögumaður með í
þeim ferðum, til þess að aðstoða
þá. er þess kunna að óska. Nú er
ákveðið, að Gullfoss fari í haust
í tvær ferðir svipaðar þessari, og
er eftirspurn mikil eftir farmið-
um í þær ferðir, að sögn fulltrúa
Eimskipafélags íslands. Einnig
verður farin jóla- og áramótaferð
síðla í desember. Hafa þær ferð-
ir verið farnar áður og tekizt vel.
Ferðaáætlun Gullfoss verður nú
með svipuðu fyrirkomulagi og
undanfarin sumur og verður
skipið í förum milli Reykjavíkur,
Leith í Skotlandi og Kaupmanna-
hafnar. Hefur verið gerð breyting
á brottfarardögum frá Reykjavík
og Kaupmannahöfn, sem hafa ver-
ið laugardagar, en verða miðviku-
dagar í sumar. Verður skipið því
í Leith á laugardögum, þegar það
er á útleið, en á föstudögum á
heimleið.