Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 9
FRJÁLS VERZLUNl 7 sem kostar alla íslendinga stór- fé og mannorðshnekki, á ekki að geta þrifizt á okkar tímum og við okkar aðstæður. Burt með skemmdarvargana. Og hver er svo niðurstaðan? Enginn er nokkru nær eftir samningana. Eyðileggingin var slík, að hvorki þessir né aðrir samningar á svipuðum grund- velli geta bætt þar úr. Kjara- bæturnar, sem voru sjálfsagð- ar, eru þegar orðnar að hégóma, vegna siðleysis pólitísku spila- gosanna. Burt með þá. Launþegi í Rvík. Kurteisi kostar ekkert. Verzlunarmenntun hér á landi virðist ekki vera í nógu góðu lagi, þrátt fyrir tvo verzl- unarskóla. Þessu hef ég veitt athygli sérstaklega á sviði al- mennrar þjónustu, þar sem ekki er krafizt langskólamennt- unar, eins og þegar ég kem í verzlanir og geri þar viðskipti eða hringi í fyrirtæki og óska eftir uppiýsingum. Hvimleiðast af öllu í þessum málum er þó hve verzlunarfólkið er oft van- kunnandi í mannasiðum og á- hugalaust um að greiða úr vandamálum eða koma vinnu- veitendum sinum að liði með lipurri þjónustu. Stundum gengur yfir mann sú afgreiðsla sem maður fær. í þessu sambandi hef ég velt því fyrir mér, hvort ekki sé hægt að hjálpa þessu fólki, sem í hlut á, með átaki af hálíu verzlunarskólanna og samtaka verzlunarfólksins, t. d. með námskeiðum, eins og Stjórnun- arfélagið hélt fyrir símastúlk- ur og ég hef heyrt rómað. Má ekki athuga þetta? Jóhannes Helgason, Reykjavík. Vél: model 8 Aths. Þessi tillaga Jóhann- esar virðist mér vera mjög tímabær, þótt það geti verið, að einhverjir aðrir aðilar en þeir sem nefndir eru, væru heppi- elgir samverkamenn, enda eiga margir hagsmuna að gæta. Verzlunarkennsla beinist nú að verulegu leyti að undirbún- ingi fyrir framhaldsmenntun og enda þótt almenn kennsla sé nokkur, sérstaklega í Sam- vinnuskólanum og á námskeið- um í Verzlunarskóla íslands, eru þeir allt of fáir, sem eiga kost á að njóta þess. Þörfin fyrir almenna verzlunarkennslu er örugglega mjög veruleg og fer stórvaxandi með hverju ári, svo að hér þarf úr að bæta með töluvert róttækum aðgerðum, að því er virðist. — Ritstj Meira um verzlunina. Sem kaupandi að Frjálsri Verzlun — og lesandi, vil ég láta í ljósi ánægju mína yfir þeim bata, sem blaðið tók nú síðast, eftir töluverðan las- leika um skeið. Ég var íarinn að halda að Frjáls Verzlun væri orðin karlæg. Þetta síðasta blað, sem ég er með í höndunum, er gott, þótt það gæti auðvitað ver- ið enn betra. Bendir það von- andi til þess, að þið hafið nú tekið verulega við ykkur. Ég vil sérstaklega fagna um- ræðum um efnahagsmál, sem ekki er of mikið af á almennum vettvangi, og á ég þá við opin- skáar umræður, sem ekki mark- ast fyrst og fremst af nagi póli- tízku blaðanna. Og ýmislegt fleira væri vert að nefna, sem vel er. Ég vil aðeins finna að einu hér, og það er skortur á upplýsingum og umræðum um verzlunina sjálfa en á slíku er mikil þörf, að mínum dómi. Verzlunin er mikilvægari en flestir aðrir atvinnuvegir okk- ar, þegar á það er litið, að ár- angur hinna veltur mjög á verzluninni, ef ekki að mestu. Verzlunin er eins konar mátt- arstólpi í þjóðarbúskapnum, sem hjólið snýst um. Og nú á verzlunin við mörg óeðlileg vandamál að glíma, sem Frjáls Verzlun ætti að beita sér fyrir að yrðu leyst. Með beztu þökkum og kveðj- um. Kristján Pálsson. Aths. Við þökkum góðar kveðjur. Það er rétt, að nú þarf að kynna málefni verzlunarinn- ar rækilega. Frjáls Verzlun er yfirleitt með efni um verzlun- ina í einhverju formi, en nú er í undirbúningi viðameira efni um málefni hennar, og er m. a. ætlunin að helga eitt blað þeim málefnum, líklega í ágúst. — Ritstj. Það eru núna 20.000 ár síðan Homo Heidiel'bergensis prentuðu fyrstu fótsóla sina á leir- inn á Rínarlbökkuin. Þetta van- seinlegt. Fyrir 110 árum byrjuðu þeir svo að framleiða prentvðlar (þær beztu í heiini) og núna í desember síðaslliðinnn voi-u þeir búnir að franileiða 220.000 vólar — og tilkynma yður jjað hér með. HEIDELBERGER DRUCKMASCHINEN AG. STURLAUGUR JÚNSSON & CO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.