Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 22
2Q FRJALS VERZLUN unandi. Fyrirheit hafa margoft verið gefin um úrlausn í þessu augljósa máli, en efndir engar orðið enn, og hlýtur áframhald- andi aðgerðarleysi að leiða til þess, að kannaður verði vilji Alþingis í málinu og það strax á næsta þingi. Sjálfs sín vegna og viðskiptamanna sinna hlýtur Búnaðarbankinn að gera kröfu til þess að fá að sitja við sama borð og hinir ríkisbankarnir, enda fullnægir hann til þess öllurn skilyrðum og hefur lengi gert. Að því er einkabankana snertir sýnist mér, að ekki geti orðið um að ræða að svo stöddu að þeir fái fullkomin gjaldeyris- réttindi, en takmarkaða heim- ild til gjaldeyrisverzlunar i einhverju formi nú eða síðar að fullnægðum ákveðnum lág- marksskiiyrðum mætti hugsa sér. SPARIFÉ Á BUNDNAR BÆKUR í AUKNUM MÆLI. NAUÐSYN AÐ VAXTA- REGLURNAR VERÐI ENDURSKOÐAÐAR. F.V.: Þess hefur gætt, að sparifjáreigendur leggi frekar inn á bundnar bækur, með hærri vöxtum. Hvaða áhrif hefur þetta á reksturinn? S.H.: Það er alveg rétt, að þróunin hefur verið sú á und- anförnum árum, að sparifé hef- ur í vaxandi mæli flutzt á bundnar bækur, sem bera frá 8 til 9 Vt % vexti. Þetta hefur auðvitað óhagstæð áhrif á rekstrarafkomu bankanna, og er þeim erfiðast, sem ekki hafa eignazt gilda varasjóði á tím- um arðvænlegra gjaldeyrisvið- skipta. Vaxtamunur inn- og út- lánsvaxta er orðin svo lítill, að hann stendur ekki undir rekstrarkostnaði þrátt fyrir skattfrelsi bankanna. Hér við bætist, að viðskiptabankarnir hafa allir orðið að sæta afleit- um vaxtakjörum í Seðlabank- anum, enda þótt þeim hafi ver- ið stórlega mismunað í mögu- leikum til tekjuöflunar og efl- ingar varasjóða sinna, og á ég þar enn við gjaldeyrisverzlun- ina. Rétt er þó að geta þess hér, að gjaldeyrisverzlunin er ekki lengur eins arðvænleg og áður, þar sem ríkið tekur nú til sín 60% af tekjum. bankanna af gjaldeyrissölunni. Heimild til gjaldeyrisverzlunar mundi því ekki leysa rekstrarvandamól bankanna, heldur ber nú nauðsyn til að endurskoða vaxtareglurnar í heild og þá fyrst og fremst útlánsvextina, forvexti, yfirdráttarvexti og vanskilavexti. Væntanlega verður svo gjaldskrá bankanna tekin til endurskoðunnar bráð- lega. í árslok 1969 námu spariinn- lán Búnaðarbankans 2.013,4 millj. kr., sem er 86,5% af heildarinnlánum, þar af 1.129,2 millj. kr. eða 48,15% á almenn- um bókum, en bundnar inn- stæður í sparisjóði á 8% eða hærri vöxtum námu 621,8 millj. kr. eða tæpum 27% af heildar- innlánum. Ávísanasjóður nam aðeins 262,4 millj. kr. eða 11, 27% og hlaupar. 314,2 millj. kr. eða 13,5%. Bundin innstæða Búnaðar- bankans í Seðlabankanum er eins og ég hef áður sagt tæpar 500 milljónir kr. eða um 20% af heildarinnlánum, og hafa fram að þessu verið greiddir aðeins um 7,5% vextir af þessu fé, en nú verið hækkaðir um %% eftir að reikningar Seðla- bankans sýndu mikinn rekstr- arhagnað hans á síðasta ári. Þessi lagfæring kemur seint og bætir lítið úr skák eftir síðustu launa'hækkanir. SJÓÐAFARGANIÐ OG SKIPULAGNING LÁNASTARFSEMINNAR. F.V.: Hver er aðstaða banka- stjóra til að fylgjast með hag og afkomu viðskiptavina bank- anna? Teljið þér ástand í þess- um efnum fullnægjandi og lánastarfsemina nógu vel skipu- lagða? S.H.: Þessari spurningu get ég ekki svarað á neinn viðhlít- andi hátt. Aðstaðan er mismun- andi í bönkunum og því miður verð ég að játa, að við í Bún- aðarbankanum höfum ekki á allra síðustu árum búið við full- nægjandi eftirlit með rekstri viðskiptafyrirtækja og má að nokkru rekja það til hins öra vaxtar bankans og aðstöðu- skorts í gamla húsinu við Aust- urstræti. En einmitt nú með auknu olnbogarúmi er að taka til starfa hagdeild við bankann undir stjórn sérfræðings, sem hefur það verkefni m.a. að rannsaka fjárhagsstöðu og rekstur viðskiptafyrirtækja bankans. Verða slíkar upplýs- ingar lagðar til grundvalhir við mat á fýsileik lánveitinga. En enda þótt í vaxandi mæli verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.