Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 14
IZ
FRJÁLS VERZLUN
Lögf og réttur
Stimpilgjaldið er fleigur í holdi
viðskiptalífsins....
Ríkissjóður tók 120 milljónir í stimpilgjöldum á síðasta ári.
Hálfrar aldar gömul lög í gildi.
Ein af meginreglum skatt-
lagningar í viðskiptalífi nútím-
ans, er að leggja skatta fyrst og
fremst á verðmætasköpunina
um leið og hún verður til, en
varast að leggja á skatta, sem í
senn eru handahófskenndir, þ.
e. bitna ekki jafnt á skattþegn-
um, og er eingöngu ætlað að
afla því opinbera tekna, án til
lits til þess, hvort slík skattlagn-
ing hefur neikvæð áhrif á verð-
mætasköpun þá, sem knýr við-
skiptalífið áfram.
Dæmigerður skattur af þess-
um neikvæða toga er stimpil-
gjald það, sem ríkið tekur af
afsölum, skuldabréfum og ýms-
um öðrum verðskjölum. Þetta
er hreinn skattur, tekinn án
tillits til þess, hvort verðmæta-
sköpun sé til grundvallar, enda
er ekki svo. Stimpilgjaldið er
því mörgum þyrnir í augum,
ekki sízt útgerðarmönnum,
sem þurfa að greiða stórfé til
ríkisins í hvert sinn, sem þeir
eignast nýtt skip.
Á hverju ári er samþykkt á
Alþingi, að heimila ríkisstjórn-
inni að innheimta ýmsar álögur
með viðauka. Þar á meðal er
stimpilgjaldið, og er það aðal-
reglan, að það er innheimt með
140% álagi. Undantekningar
eru, að stimpilgjald af fast-
eignaafsölum er innheimt með
100% álagi, þannig að gjald-
ið er nú 2% af fasteignaverði,
og að ekkert álag hefur verið
lagt á stimpilgjald skipsafsala
síðan 1968, og hefur það því
verið 1 % af skipsverði síðan, en
var áður 2.4%. Engu að síður
er stimpilgjald af fasteignum
og skipum mjög hátt, þar sem
gjaldstofninn er hár. Það er
lítið fiskiskip sem kostar ekki
nema 10 milljónir, en stimpil-
gjald við eigendaskipti á slíku
skipi er þó 100 þúsund.
Handalióf. Það verður naum-
ast annað sagt en að talsvert
handahóf ríki í álagningu
stimpilgjaldsins í ýmsum til-
vikum. Stimpilgjald af fast-
eignum er að jafnaði 2% eins
og áður segir, en sú undantekn-
ing er þó gerð, að þegar fast-
eign er afsöluð hlutafélagi, skai
greiða tvöfalt stimpilgjald, eða
4%. Það er spurning: Hafa
hlutafélög eitthvað til saka unn-
ið og þetta sé refsingin? Svo
fáránleg ástæða getur þó ekki
legið til grundvallar, heldur
sennilega frekar sú skoðun, að
hlutafélög séu öðrum aðilum
fjársterkari og geti því greitt
tvöfalt gjald. En þegar betur er
að gáð, er þessi ástæða þó ekki
haldbetri en sú fyrrnefnda.
Hlutafélög berjast oft í bökk-
um með rekstur sinn, eins og
aðrar reksturseiningar, og
greiða þá að jafnaði lægri
skatta en þegar vel gengur.
Megjnmarkmið þeirra er at-
vinnurekstur og þar sinna þau
brýnasta vðfangsefni þjóðfé-
lagsins, sem er verðmæta- og
atvinnusköpun. Þurfi hlutafé-
lag, sem á í fjárhagsörðugleik-
um að kaupa fasteign einhverr-
ar tegundar, til þess að geta
bætt rekstur sinn, er það hagur
þjóðfélagsheildarinnar, að sem
minnst standi í vegi fyrir því.
Aukaskattur á slíkt fyrirtæki
myndi flestum þykja fáránleg
ráðstöfun. En þetta er samt
það, sem við blasir, þegar hluta-
íélagið kaupir fasteignir. Þvi er
gert að greiða tvöfalt stimpil-
gjald miðað við aðra, og fast-
eignin þarf ekki að vera dýr,
svo að stimpilgjaldið nemi
mörgum tugum eða hundruð-
um þúsunda.
Það er oft einkenni á lögum,
sem ósanngjörn þykja eða ó-
eðlileg, að misjafnlega tekzt til
um framkvæmd þeirra, og á
það ekki sízt við um fram-
kvæmd skattalaga. Segja má,
að innheirnta stimpilgjaldsins
hafi verið tiltölulega einföld,
þar sem afsal eða annað stimp-
ilskylt skjal fæst ekki þinglýst,
nema stimpilgjaldið sé greitt
um leið. En margir reyna í
lengstu lög að komast hjá
greiðslu stimpilgjaldsins, og
lenda oft í meiriháttar vand-
ræðum út af því. Þá færast fast-
eignir oft milli handa, án þess
að nokkurt skriflegt afsal sé
gert til þinglýsingar. Dæmi um
það má nefna, að fyrirtæki sé
afsalað til nýs aðila. Það kann
að eiga margar fasteignir, og er
þá ekki annað en dulbúið afsal
fasteignanna að ræða, sem
hvorki verður þinglýst né
stimpilgjald greitt af að nýju.
Fleiri atriði mætti vafalaust
tína til um misjafnlega fram-
kvæmd þessara laga. Er t. d.
ekki grunlaust um, að verð á
skipum og raunar ýmsum fast-
eignum sé skráð lægra í afsöl-
um en rétt er, beinlínis til að
komast hjá því að greiða fullt
stimpilgjald.
Alvarlegasti agnúinn. Alvar-
legasti agnúinn, sem fylgir
stimpilgjaldinu, er þó sá, að
við eigendaskipti á skipum,