Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 11

Frjáls verslun - 01.06.1970, Blaðsíða 11
FRJÁLS VERZLUN 9 Ostaófestar fregnir \ FLAKKI Hvað gerir Alþýðuflokkurinn ? Alþýðuflokkurinn glímir við innri vanda eft- ir ósigur í borgarstjórnarkosningunum í Reykja- vík, enda þótt hlutur hans yrði að öðm leyti sæmilegur í kosningunum. Ósigurinn í Reykja- vík varð á þeim tíma, sem þreytumerki voru vaxandi innan stjórnarflokkanna, eftir allnokk- ur átök við afgreiðslu ýmissa meiriháttar mála í þinglok í vor. Háværar kröfur innan Alþýðu- flokksins um endurskoðun á afstöðu til ríkis- stjórnarinnar hafa náð fram að ganga, og í bæj- arstjórnum hafa Alþýðuflokksmenn greinilega verið sérlega varir um sig í sambandi við myndun meirihluta allviða. Af hálfu þeirra ó- ánægðu heyrast nú ýmsar fullyrðingar, sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en að samstarfs- hæfni Alþýðuflokksins í ríkisstjórn hafi beðið verulegan hnekki. Það má alveg eins búast við að endurskoðun á þátttöku flokksins í ríkis- stjórninni leiði til stjórnarslita áður en langt um líður. Sjálfstæðismenn á varðbergi Vegna þessara nýju viðhorfa og þess, að þreyta er einnig fyrir hendi innan Sjálfstæðis- flokksins, þykir ýmsum Sjálfstæðismönnum vissara að búast við öllu. Eru jafnvel uppi radd- ir innan flokksins um að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að búa sig undir haustkosningar og stofna sjálfur til þeirra, ef Alþýðuflokkurinn gerir það ekki. Vilja þeir halda því fram, að flokksleg staða Sjálfstæðisflofcksins sé það sterk eftir sveitarstjórnarkosningarnar, að sjálfsagt sé að nota tækifærið, úr því þreytan er orðin slí'k, sem raun ber vitni. og Alþýðuflokkurinn á orð- ið í baráttu um stjórnarsamstarfið. Framsóknarmenn búa um sig Á meðan Alþýðuflokkurinn hefur fjarlægzt fyrri stöðu sína, og ekki áttað sig á á- standinu. hefur Framsóknarflokkurinn sezt í meirihluta með öðrum flokkum í öllum bæiar- stjórnum nema þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur hreinan meirihluta. Eru ár og dagar síðan Framsóknarflokkurinn hefur sózt svo eftir sam- vinnu við Sjálfstæðisflokkinn í sveitarstjórnar- málum, sem nú. en þessir flokkar starfa nú saman einir í fjórum kaupstöðum, þar af bæði í Kópavogi og á Akureyri. Lesa margir þetta sem teikn um þróun mála eftir næstu þingkosn- ingar, hvort sem þær verða í haust eða næsta vor. Sé það óhætt, hefur Framsóknarflokkurinn í bili gefið á bátinn vinstri hugsjónina, sem mestu hefur ráðið um árabil. Líldegra er þó, að forystumenn flokksins vilji nú hafa báðar leiðir opnar, og geta legið til þess augljósar ástæður. Verðgæzlufrumvarpið enn í óvissu Hið furðulega og fræga fall verðgæzlufrum- varpsins á Alþingi hinu síðasta, hefur til skamms tíma verið ofarlega á baugi í viðskiptaheiminum, svo sem vonlegt er. Á síðustu vikum fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar, hélt viðskiptamálaráð- herra því fram, að frumvarpið næði vafalaust fram að ganga í haust og myndi því taka gildi ekki síðar en ráð var fyrir gert. Var þetta tekið nánast sem loforð. Þetta loforð þótti merkilegt, eftir allt sem á undan er gengið. Nú er það svo, að engum er Ijóst hvernig viðskiptamálaráð- herra hefur ætlað sér að efna loforðið. Afstaða í hans flokki er örugglega ekki jákvæðari nú eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Efndirnar velta því á Framsóknarflokknum, sem viðskipta- málaráðherra treysti á í vetur, þegar frumvarp- ið féll. Hér er því enn allt í sömu óvissunni og nauðsyn að hagsmunasamtök í viðskiptalífinu haldi vöku sinni í baráttu fyrir framgangi frum- varpsins — og raunar herði á. Verður gripið til örþrifaráða? Kaupmenn urðu að vonum mjög óánægðir með afgreiðslu verðgæzlufrumvarpsis í vetur. Hin ströngu verðlagshöft hafa bitnað harkalega á verzlunrrfyrirtækjum, eins og gefur að skilja, og þróun í verzlunarrekstrinum hefur á ýmsa lund orðið mjög óhagstæð frá þjóðhagslegu sjón- armiði. Nú eru að skapast, ný viðhorf í verzlun- inni með aðild okkar að EFTA, sem gera stór- auknar kröfur. Verzlunin er vanbúin að standast þær. eins og í nottinn er búið, og það getur orðið okkur dýrkeyotur fiötur um fót. Þetta var kaunmönnum lióst, að siálfsöeðu En ó- ánægia þeirra risti þó enn dýnra. Friáls verð- laísmvndun innan þeirra eðlilegu aðhaldsmarka, sem gert var ráð fvrir í frumvaroinu. hefur marfrsannað ótvírætt. kiarabótagildi sitt fyrir nertend.ur, þar sem hún hefur náð fótfestu En bað var einmitt á fragnstaaðum sjónarmiðum. sem frumvprnið féll. Þar með var mælirinn fullur. Það ótrúlega skilningsieysi. sem birtist í þessu. er vissulega óbolandi. Það er því ekki að undra þótt nú heyrist um bað raddir, að kaupmenn verði að prina t.il örþrifaráða og hundsa verð- lagseftirlitið, neita að hlíta þeirri verðlagningar- meðferð. sem nú er viðhöfð, og knýia hannig fram friálsa verðlagsmyndun. Slík aðgerð væri vitaskuld óæskileg í hæst.a máta og kauomönn- um þvert um geð að grípa til hennar. En hug- myndin sýnir alvöru málsins og algera nauðsyn skjótra úrbóta. Kólfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.