Frjáls verslun - 01.06.1970, Síða 34
32
FRJÁLS VERZLUN
Stálbátur í smíðum hjá íslenzkri skipasmíðastöð ...
og næst er það skuttogarinn ... þetta er togari með vörpukefli.
in, voru nokkrir menn, vel
metnir á alþjóðavettvangi, úr
skipasmíðagreinum, sem skoð-
uðu hér stálskip í smíðum og
felldu lofsamlega dóma um allt
handbragð á smíðinni. Einn
þessara manna, Mr. Campion,
frá „The Herring Industry
Board“ í Stóra-Bretlandi, gaf
sér tíma til að bera saman
smíðalýsingu af íslenzku skipi
í smíðum við brezka lýsingu.
Fljótt á litið virtist íslenzka
skipið vera um 10% dýrara, en
við samanburð kom í ljós m. a.:
aðalvél í ísl. skipinu er 565
H.P. móti 425 H.P., ljósavélar
2x35 KW móti 2x10 KW, hvíl-
ur 12 á móti 6 til 8i og spil
stærra í íslenzka skipinu. Mr.
Campion sannfærðist um, að
verðið væri ekki hærra hér.
Fyrsti íslenzki samningurinn
hefur verið gerður um srníði á
tveim skipum fyrir Indverja.
Það er Bátalón í Hafnarfirði,
sem smíðar. Ef vel tekst til
fylgja vafalaust mikil viðskipti
í kjölfarið.
Nú eru í smíðum innanlands
mörg fiskiskip, flest 50 og 105
rúmlestir. Nokkuð hefur verið
rætt um að smíða togara innan-
lands, sennilega kemur bráð-
lega að því.
Við, sem byggjum afkomu
okkar svo mjög á sjávarútvegi,
verðum ávallt að fylgjast vel
með og kappkosta að standa
fremstir þjóða hvað skip og
veiðarfæri snertir. Á það skort-
ir verulega eins og stendur.
Hér þarf að srníða mörg ný
skip og leggja þeim elztu og
úreltu. Ráðlegt væri að smíða
eitt til tvö tilraunaskip og koma
þar við nýjustu tækni með
vinnuhagræðingu í huga. Gera
breytingar, sem einstaklingar
hafa ekki bolmagn til að kosta
af veikum fjárhag sínum. Við
þurfum að leggja meiri áherzlu
á að sækja fram til nýrra sigra,
okkur sjálfum og afkomendum
til farsældar og sæmdar.