Frjáls verslun - 01.07.1970, Síða 64
62
FRJAL5 VERZLUN
Erlendar fréttir
Lr öllum álfum
VÖRUFLUTNINGAR MEÐ
FLUGVÉLUM STÓRAUKAST
Síðasta áratug hafa vöru-
flutningar með flugvélum auk-
izt stórkostlega, einkum eftir að
umbætur voru gerðar á skipu-
lagi og tækni við lestun og los-
un, er þotuflugið varð almennt.
Framan af fluttu flugvélar
einkum viðkvæman eða áríð-
andi varning, svo og póst og
blöð. Nú má segja að þær flytji
allt milli himins og jarðar.
Sem dæmi um aukninguna
má nefna, að flutningamiðstöð
í Kaupmannahöfn, sem tekin
var í notkun 1967 og þótti þá
risastór, er orðin svo ásetin, að
á döfinni er að stækka hana
um nær helming einungis
vegna fyrirsjáanlegra þarfa á
allra næstu árum. SAS flytur
mikinn hluta af þeim vörum,
sem um miðstöðina fara, en á
síðasta starfsári SAS flutti fél-
agið um 80 þús. tonn af vör-
um.
Gert er ráð fyrir að vöru-
flutningar með flugvélum hafi
fimmfaldazt 1975 frá árinu
1967.
BEZTA KÚ í HEIMI?
Dönsk kú, af svokölluðum
Jerseystofni, er sögð bezta kú
í heimi, enda hafa afurðir henn-
ar síðustu 10 ár verið 5.078 kg.
af smjöri.
Kýr af þessum stofni hafa
stórvaxið í áliti í Danmörku á
síðustu árum, og á Fjóni, þar
sem RDM stofn hefur verið
nær einráður, eru nú 46%
kúnna af Jerseystofni.
MILLJÓN VW FRÁ
V0LSW4GEN DO BRASIL
Þann 8. júlí sl. var millj-
ónasta Volkswagen bifreiðin
afgreidd frá Volkswagen do
Brasil, en þetta útibú þýzku
VW verksmiðjanna er
stærsta útibú þýzks iðnaðar
erlendis.
Rekstur Volkswagen do
Brasil, sem er í Via Anchieta
við Sao Paulo í Brasilíu,
hófst 1953. Framleiðsla hófst
1957, í september, og til ára-
móta var lokið við 370 bif-
reiðar. Árið 1969 var lokið
við 178.179 bifreiðar. Fram-
leiðslan er sem næst 1.000
bifreiðar hvern vinnudag,
og fer jafnt og þétt vaxandi.
Starfsmenn Volkswagen
do Brasil eru 23.000 talsins.
Árið 1969 greiddi Volks-
wagen do Brasil í opinber
gjöld í Brasilíu rúmlega 500
miiljónir Cruzeiros. Önnur
fyrirtæki í bifreiðaiðnaði í
Brasilíu greiddu í opinber
gjöld það ár álíka upp'hæð
til samans.
TVÆR MILLJÓNIR Á ÁRI
Árið 1969 framleiddu all-
ar verksmiðjur Volkswagen
2.094.438 bifreiðar, og eru
þá meðtaldar bifreiðar af
gerðunum NSU og AU, 264,-
414 talsins. Framleiðsluaukn-
ingin frá 1968 nam 17.8%.
Framleiðsla NSU og AU bif-
reiða einna jókst um 72%.
Á árinu 1969 voru fram-
leiddar í heiminum um 29
milljónir bifreiða.
EFNAIÐNAÐURINN MET-
HAFI í AUGLÝSINGUM
Rannsókn, sem nýlega var
gerð í Austurriki á auglýsing-
um, leiddi í ljós, að efnaiðnað-
urinn á þar glæsilegt auglýs-
ingamet, en hann greiðir um
33% af öllum auglýsingakostn-
aði í landinu. Auglýsingar um
efnavörur, mat- og nýlenduvör-
ur voru um 60% allra auglýs-
inga í Austurríki, þegar rann-
sóknin var gerð.
STÓRMARKAÐUR
í GODTHÁB
Nú er á döfinni, að byggja
fyrsta stórmarkaðinn í Græn-
landi, nánar tiltekið í Godtháb.
Stofnað hefur verið félag til að
annast uppbyggingu markaðs-
aðstöðunnar. Að undanförnu
hefur verið byggt mikið upp
í Godtháb, og er nú talið nauð-
synlegt, að stofna þar stórmark-
að, þar sem verði verzlanir,
þjónustufyrirtæki og stofnanir.
FRÆG PÍANÓFRAMLEIÐSLA
Austurríkismenn eru frægir
píanósmiðir, og annarra þjóða
píanósmiðir sækja í miklum
mæli þekkingu til Austurríkis.
90% af píanóum, sem búin eru
til í Austurríki eru seld til
annarra landa, einkum Banda-
ríkjanna, Vestur-Þýzkalands,
Englands, Japans og Frakk-
lands. Þar af eru 60% venju-
leg píanó til einkanota, en 40%
konsertflyglar.