Frjáls verslun - 01.02.1971, Side 21
FRJÁLS VERZLUN NR. 2 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
21
I lÁlI A
Bezta tegunef turtoferti mmm
msstíJöR
Kaupfébg Eywfinga
Mf. SMJÖ9MKISGÍ&0 ISAWA60AS?
urgreiðslurnar byrjuðu. Hér hefur þó ekki ver-
ið tekið með í reikninginn, að innheimta skatt-
anna og greiðsla niðurgreiðslanna hefur haft ein-
hvern aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkis-
sjóð, þannig að raunveruleg skattahækkun yrði
nokkru meiri.
Niðurgreiðslur valda röskun á verðhlutföllum
innan atvinnugreina.
Þegar ein afurð einhvers atvinnuvegar er níð-
urgreidd, en aðrar ekki, veldur það röskun á
framleiðsluhlutföllum innan atvinnuvegarinns.
Tökum dæmi úr landbúnaði. Gerum ráð fyrir,
að afurðaverð til bænda sé ákveðið í samræmi
við framleiðslukostnað. Yrðu þá til dæmis
ákveðin verðhlutföll milli dilkakjöts. nauta-
kjöts og svínakjöts. Ef ein kjöttegundin verður
greidd niður, breytast verðhlutföllin gagnvart
neytendum, og eftirspui'n eftir þeirri kjötteg-
und eykst á kostnað hinna tegundanna. T. d.
gæti sauðfjái'bóndinn selt afurð sína, ef dilka-
kjöt yrði greitt niður, en hinir bændurnir, sem
framleiddu nauta- og svínakjöt sætu eftir með
sárt ennið. Svipuð röskun getur einnig átt sér
stað, séu tvær eða fleiri afurðir framleiddar sam-
hliða, ef ein er niðurgreidd en hinar ekki. Við
sauðfjárrækt eru höfuðafurðirnar kjöt, ull og
gærur. Verð til framleiðenda á ull og gærum
hefur ákvarðazt af heimsmarkaðsverði á þess-
um afurðum. Verð á kjöti hefur hins vegar
hækkað langt upp fyrir heimsmarkaðsverð, en
með niðurgreiðslum og útflutningsuppbótum
hefur útsöluverði verið haldið nógu mikið í
skefjum, til þess að unnt er að selja það. Gagn-
vart framleiðandanum snýr sú mynd, að hann
fær langmest fyrir kjötframleiðslu sína, og þar
af leiðandi hlýtur hann að leggja sig mest eftir
að auka hana, án þess að hugsa jafn mikið um
hinar afurðirnar. Raunverulegt framleiðslu-
verðmæti getur verið allt annað, en niðurgreiðsl-
urnar hafa brenglað öllum hlutföllum.
Seint mun ganga að kveða niður niður-
greiðslumóra, en látum okkur ekki loka augun-
um fyrir því, sem hann hefst að.
Bifreiðaviðgerðir Réttingar Sprautun
Önnumst hvers konar viðgerðir, réttingar og sprautun á öllum
tegundum bifreiða.
Höfum umboð fyrir SKODA á Vestfjörðum.
Reymð viðskiptin við stærsta bifreiðaverkstæði Vestfjarða.
BÍLAVERKSTÆÐI tSAFJARÐAR H.F.
SELJALANDSVEGI 84, ISAFIRÐI. SlMI 94 3379.