Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1971, Síða 35

Frjáls verslun - 01.02.1971, Síða 35
sig í sín störf, eins og flestir aðrir. Það er sérstakt fyrirbæri, ef kaupmaður þarf ekki að hafa sig allan við. Ég þekki ekki slíkt dæmi. — En kaupmennskan, hvern- ig er hún annars? — í mínum augum er hún ábyrgðarmikið þjónustustarf. Verzlunarþjónustan er vafa- laust einhver mikilvæeasta þjónusta í nútímaþjóðfélagi, um hana fara miklir fiár- maensstraumar, sem mikil- vægt er að skili öllum almenn- ingi, og kaunmönnum þar með, árangri af striti hvers- dagsins. Hagkvæmni í verzlun- arrekstri er sparnaður fyrir alla, við getum sagt með ein- földum orðum, að hún auki kaupmátt launanna. — Og hvernig líkar þér starfið? — Það er fjölbrevtt og að mörgu levti skemmtileet. Mað- ur er í rrnðri hringiðunni og kvnnist fiölda fólks í samstarfi og viðskiptum. Ánægjuieg kynni við viðskiptavini, st«tt- arbræður og samstarfsfólk bæta margt upn, sem aflaga fer. En vandamálin eru dag- legt brauð, og mér þykir verst, að flest eru þau raunverulega sprottin af úreltum hugsunar- hætti, sem enn ræður mestu um stöðu verzlunarinnar hér á landi. Þetta er vanþróaður hugsunarháttur, íslenzk verzl- un er áratugum á eftir hvað þjóðhagslegan árangur snertir, af því að frjáls samkeppni og hagkvæmur rekstur fær ekki að njóta sín. Okkur kaupmönn- um er í flestum atriðum alger- lega meinað að ná meiri hag- kvæmni. og er hreinlega refsað fyrir viðleitni í þá átt, þar sem við getum bætt um. Hér er gengið rakleitt á hlut nevtenda og alls almennings í landinu. Það er staðreynd, að við ís- lendingar evðum daglega stór- fé í neyzluvörur og þjónustu umfram það, sem eðlilegt getur talizt, þetta eru peningar, sem aðrar þjóðir græða á íslenzk- um miðaldafordómum. Þessi vandamál eru mér og öðrum kaupmönnum þyrnir í augum, af því hve þau skerða stórlega möguleika okkar til þess að gegna því hlutverki, sem felst í eðli verzlunarreksturs, Ég held að fátt sé okkur íslend- ingum nauðsynlegra en að endurmeta gildi verzlunarinn- ar og þjónustuatvinnuveganna yfirleitt. MYNDIR: 1. Oskar Jóhannsson kaup- maður í verzlun sinni, Sunnu- búðinni í Mávahlíð 26, en Sunnubúðin er einnig í Sörla- skjóli 42. 2. Óskar ásamt konu sinni, Elsu Friðriksdóttir, og börnum. Börnin eru, f. v. Frið'rik Þór, verzlunarskólanemi og kunnur frjálsírbtóttamaður, Guð'ný Rósa, gjaldkeri í Verzlunar- banknum, Helga Guðrún, inn- kaupastjóri í Sunnubúðinni, hálfsystirin Sigrún, húsmóðir - og skrifstofustúlka lijá bæjar- fógetanum í Hafnarfirði Ósk- ar Jóhann, gagnfræðaskóla- nemi.

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.