Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1971, Síða 38

Frjáls verslun - 01.03.1971, Síða 38
36 GREINAR OG VIÐTOL FRJALS VERZLUN NR. 3 1971 Samvinnuverzlun og þjónusta í Hafnarfirði og Garðahreppi Samvinnuverzlun og þjónusta í Mosfellssveit KAUPFÉLAG KJALARNESÞINGS, BRÚARLANDI Samvinnuverzlun og þjónusta í Grundarfirði KAUPFÉLAG GRUNDFIRÐINGA, GRUNDARFIRÐI ig eru gefin út rit, Hlynur og Samvinnan, svo og er nýlega hafin útgáfa fréttabréfs, Sam- bandsfrétta. Þá er eftir að geta starf- semi erlendis. Kaupmanna- hafnarskrifstofa var stofnuð 1915 og var hún rekin til 1958. Sambandið rekur nú skrifstofu í Hamborg og aðra í Londan, sem áður var í Leith. Þá rekur Sambandið í samvinnu við frystihúsin verksmiðju og sölu- félag í Bandaríkjunum, sem vinnur og selur sjávarafurðir. Þetta eru megindrættirnir. FRÆÐSLUSTARFSEMI ÞÝÐINGARMIKIL. FV: Nú hefur samvinnu- hreyfingin haldið úti fræðslu- starfsemi, eins og þú minntist á. Hvernig gengur sú starf- semi og hvers virði telur þú að hún sé? EE: Jú, það hefur verið reynt, að halda úti fræðslu- og kynn- ingarstarfsemi í nokkrum mæli, og ég held að sá þáttur þyrfti að aukast. Hins vegar er það visst vandamál. Nú troða fjölmiðlar svo miklu bæði í gegn um eyru og augu af alls konar efni, að það er orðið erf- iðara að reka öfluga kynning- arstarfsemi en áður var. Nú er í athugun eitt atriði, sem ég vil sérstaklega víkja að, en það er svokölluð leshringastarfsemi innan kaupfélaganna, að norskri fyrirmynd, sem hefur þar í landi gefið góða raun. Þessi starfsemi snýst bæði um samvinnuhreyfinguna og störf, sem unnin eru innan hennar vébanda. Ég tel mjög æskilegt og raunar mikilvægt, að hinn almenni félagsmaður geti fylgzt með rekstri samvinnu- félaganna frekar en nú er. Og þegar rætt er um þessi mál á breiðari grundvelli, þá tel ég að almenningur þurfi að fá miklu meiri fræðslu og vitn- eskju um efnahagsmál og at- vinnulífið, hvernig verðmæti skapast og hvernig þeim er ráðstafað, m. a. í hinum ein- stöku fyrirtækjum. f þessu efni held ég að við séum eftir- bátar nágrannaþjóðanna. En almenn þekking á þessum mál- um held ég að myndi skapa raunhæfara almenningsálit í efnahagsmálum. TILRAUN MEÐ SAM- VINNUNA. FV: Einn þátturinn, sem rekinn hefur verið innan fræðslustarfseminnar, útgáfa

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.