Frjáls verslun - 01.03.1971, Page 39
FHJÁLS VERZLUN NR. 3 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
37
Samvinnunnar, hefur þótt all-
sérstæður síðustu árin. þar
sem lítið eða nær ekkert er
fjallað um samvinnumálefni
að staðaldri. Hins vegar sagði
blaðið Nýtt land nýlega, að
Samvinnan væri „málgagn
allra vinstri manna“. Hvað býr
að baki þessari útgáfustarfsemi,
sem heyrzt hefur að kosti Sam-
bandið milljónir á ári, vegna
hallareksturs?
EE: Varðandi útgáfu Sam-
vinnunnar í núverandi formi,
þá skal þess getið, að ákveðið
var að gera tilraun með að gefa
út tímarit, sem væri opið og
tæki til meðferðar ýmis þjóð-
félagsmálefni og reynt yrði að
brjóta þessi málefni til mergj-
ar með því að fá menn til að
lýsa þar í greinum mismun-
andi sjónarmiðum. Það má
deila um, hvernig þetta hefur
tekizt, og það er ekkert laun-
ungarmál, að margir sam-
vinnumenn eru óánægðir með
að ekki skuli vera meira í
Samvinnunni um samvinnu-
mál. og eins þykir mörgum að
sjónarmið þau, sem fram koma
í ritinu, hafi verið fremur rót-
tæk og ekki jafnræði í því til-
liti. Þessi gagnrýni kom m. a.
fram á siðasta aðalfundi Sam-
bandsins, en fundarmenn voru
nú á þeirri skoðun, að halda
þessari tilraun áfram.
Þá vil ég taka það fram,
varðandi hallarekstur á Sam-
vinnunni, að þar er ekki um
milljónir að ræða á ári, heldur
no'kkur hundruð þúsund krón-
ur.
RÍKI í RÍKINU?
FV: Stundum er talað um
samvinnuhreyfinguna hér á
landi, sem ríki í ríkinu. Hún
er vissulega stór — og sterkt
afl, og fer í ýmsu eigin götur,
stendur t. d. að verulegu leyti
sjálfstæð, sem atvinnurekandi.
Er það ekki að nokkru leyti
rétt ályktun. að hún sé ríki í
ríkinu?^
EE: Ég vil nú halda því
fram, að svo sé ekki. Enda
þótt samvinnuhreyfingin sé til-
tölulega nokkuð stór, þegar
hún kemur saman í eitt, þá er
hlutur hennar í verzlun lands-
manna miklum mun minni en
einkaframtaksins í heild. Það
má e. t. v. segja, að samvinnu-
hreyfingin sé nánara tengd inn-
byrðis en einkaverzlunin, og úti
um land er samvinnuhreyfing-
in vissulega víða sterk, en þar
hafa menn talið heppilegt að
reyna að sameina kraftana við
að halda uppi verzlun og við-
skiptum, þar sem aðstaða er oft
erfið. En ég held að ekki sé
hægt að tala um ríki í ríkinu,
og hvað varðar félagsmanna-
fjöldann, þá eru til lönd í Vest-
ur-Evrópu, þar sem fleiri eru í
samvinnufélögunum hlutfalls-
lega. Á móti kemur jú, að
hreyfingin hér hefur með
höndum margbreytilegri starf-
semi en víðast hvar annars
staðar. þegar Israel er undan-
skilið.
SÉRSTAÐA í KJARAMÁLUM.
FV: En hvað þá um sérstöð-
una á vinnumarkaðnum? Nú
hefur Sambandið sitt Vinnu-
málasamband, getur það ekki í
gegnum þetta sérstaka apparat
auðveldlega haft úrslitaþýð-
ingu í kjarasamningum?
EE: í þessu sambandi vil ég
láta koma fram, að nágrannar
okkar, samvinnusamböndin í
Svíþjóð, Noregi og Danmörku
hafa einnig sín vinnumálasam-
bönd. En munurinn er bara sá,
að í þessum löndum hefur ver-
ið gágnkvæmt samkomulag
milli vinnumálasambanda sam-
vinnufélaganna og alþýðusam-
bandanna um að vinnumála-
samböndin koma ekki beint
inn í kjarasamninga. Fyrst er
samið við vinnuveitendasam-
böndin, sem eru að sjálfsögðu
miklu stærri og aflmeiri. Þeg-
ar samningar hafa tekizt við
þau, setjast fyrrnefndu aðilarn-
ir að samningaborði, og í Nor-
egi t. d. er það ákvæði í þessu
samkomulagi, að ef ekki nást
samningar milli vinnumálasam-
bandsins og alþýðusambands-
ins skuli málið lagt í gjörð.
FV: Nú er samkomulag ekki
fyrir hendi. og samvinnuhreyf-
ingin hér rekur fjölþættari
starfsemi en gerist í þeim lönd-
um. sem þú nefndir. Og fyrir
10 árum skáru samvinnufélög-
in sig úr í kjarasamningum og
sömdu á undan. Getur ekki far-
ið þannig aftur á meðan sam-
komulag við ASÍ er ekki til?
EE: Vinnumálasamb. samv.-
félaganna er sjálfstæður samn-
ingsaðili. Þegar það samdi árið
1961 við verkalýðsfélögin um
11% kauphækkun og ákveðna
hækkun á ári næstu tvö árin,
mig minnir 3%, þá voru slíkir
samningar af hálfu Vinnu-
málasambandsins taldir raun-
hæfir. Þar var farið inn á þá
braut að semja til 3ja ára.
Gengisfellingin 1961 eyðilagði
því miður þessa samninga. •—-
Að sjálfsögðu þuría sjónarmið
Vinnumálasambandsins og
Vinnuveitendasambandsins
ekki endilega að fara alltaf
saman. í samvinnuféiögunum
er fjöldi fólks, sem einnig er
í verkalýðsfélögunum. Vinnu-
málasambandið hlýtur að hafa
það sjónarmið, að reyna að
ganga sem mest til móts við
verkalýðsfélögin, en jafnframt
verður að taka með í reikning-
inn rekstrarstöðu félaganna.
Það á að sýna vinsemd, en
jafnframt ábyrgð.
MINNKANDI PÓLITÍK.
FV: Félagsmenn í samvinnu-
félögunum eru úr öllum stjórn-
málaflokkum, og þau eru jú
fyrst og fremst til vegna við-
skiptahagsmuna félagsmanna
sinna. Er samvinnuhreyfingin
því ekki í eðli sínu óflokkspóli-
tísk?
EE: Þegar vegararnir í
Rocksdale stofnuðu fyrsta
kaupfélagið 1844, var það ein
af grundvallarreglunum, að
það skyldi ríkja hlutleysi inn-
an félagsins varðandi trúmál og
stjórnmál. Ég held að þetta sé
nú talið enn eitt grundvallar-
atriðið hjá samvinnufélögum í
heiminum. En þó er það nú