Frjáls verslun - 01.03.1971, Side 40
38
GREINAR OG VIÐTÖL
FRJÁLS VERZLUN NR .3 1971
Samvinnuverzlun og þjónusta á Patreksfirði og
Tálknafirði
KAUPFÉLAG PATREKSFJARÐAR
KAUPFÉLAG TÁLKNAFJARÐAR
Samvinnuverzlun og þjónusta í Bíldudal í Arnarfirði
KAUPFÉLAG ARNFIRÐINGA, BlLDUDAL
Samvinnuverzlun og þjónusta á Þingeyri í Dýrafirði
KAUPFÉLAG DÝRFIRÐINGA, ÞINGEYRI
svo, að stjórnmál hafa bland-
azt inn í þetta, ekki bara hér á
íslandi. heldur og ekkert síður
í nágrannalöndunum. Það eru
viss pólitísk öfl, sem hafa talið
sig meira félagshyggjusinnandi
en önnur og hafa reynt að
greiða götu samvinnuhreyfing-
arinnar. Svo eru aftur önnur
öfl, sem hafa talið annað fyrir-
komulag heppilegra, þannig að
þarna hefur verið um pólitísk-
an ágreining að ræða, og
stjórnmálin hafa blandazt inn
í. Hér á íslandi var það svo,
þegar samvinnuhreyfingin var
að hazla sér völl, þá naut hún
stuðnings ákveðins stjórnmála-
flokks, og þar voru hugsjóna-
tengsl á milli, sem ég held að
séu enn fyrir hendi. Það er ekki
óeðlilegt að þeir stjórnmála-
flokkar, sem hneigjast fremur
en aðrir að félagshyggju,
styðji samvinnufélögin.
FV: Er þá eðlilegt, að sam-
vinnuhreyfingin beinlínis launi
stjórnmálaflokki sérstaklega
þessi hugsjónatengsl og stuðn-
ing, sem að sjálfsögðu kann að
vera umdeildur? Því hefur oft
verið fleygt, að kaupfélögin
séu notuð í þágu Framsóknar-
flokksins, jafnvel með við-
skiptakúgun, en flestir stjórn-
endur samvinnufélaganna eru
jú Framsóknarmenn og
flokksbundnir.
EE: Hvað þessari spurningu
viðvíkur, vil ég vísa til þess,
sem ég sagði áðan, að sam-
vinnuhreyfingin studdist veru-
lega við Framsóknarflokkinn,
þegar hún var að vaxa upp, og
það var Framsóknarflokkurinn,
sem beitti sér fyrir því. að sett
voru sérstök lög um samvinnu-
félögin á sínum tima. Það var
ekki óeðlilegt, að það væru
frekar Framsóknarmenn, sem
stjórnuðu kaupfélögunum þá,
ef stjórnendurnir voru pólitískt
sinnaðir, þegar málin eru skoð-
uð í því ljósi, sem þá ríkti.
Ég held að það hafi orðið mik-
il breyting á þessu í seinni tíð
og flokkspólitíkin hafi minnk-
að, hvað þetta snertir. Og póli-
tísku viðhorfin, sem að sam-
vinnuhreyfingunni snúa, hafa
breyzt í heild, ekki aðeins hjá
Framsóknarflokknum. heldur
einnig hjá öðrum flokkum, og
á ég þá sérstaklega við Sjálf-
stæðisflokkinn, sem sýnt hefur
samvinnuhreyfingunni meira
hlutleysi en áður. En eins og
menn vita, stóð oft hörð bar-
átta um verzlunina í landinu,
þá voru oft tvær fylkingar, sem