Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1971, Page 41

Frjáls verslun - 01.03.1971, Page 41
39 FRJÁLS VERZLUN NR .3 1971 áttust við, annars vegar Sjálf- stæðisflokkurinn, sem studdi einkaverzlunina, hins vegar Framsóknarflokkurinn, sem studdi samvinnuverzlunina. Mér finnst pólitíkin miklu minna áberandi í þessum mál- um en áður, og má þá minna á. að stjórn Sambandsins, sem áður var eingöngu skipuð Fram sóknarmönnum, er það ekki lengur. Varðandi það atriði, að sam- vinnufélögunum sé beitt fyrir Framsóknarflokkinn, jafnvel með viðskiptakúgunum, þá vil ég algerlega neita því. Rekstur kaupfélaganna og Sambandsins miðast fyrst og fremst við það, að hann gangi vel, og þar eru menn ekki dregnir í pólitíska dilka, eftir því sem ég bezt veit. SAMA SKATTLAGNINGIN. FV: Hvernig eru samvinnu- félögin skattlögð nú, samanbor- ið við einkarekstur? EE: Þau eru nú skattlögð á svipaðan hátt og hlutafélög. Þó er samvinnufélögunum heimilt að endurgreiða tekju- afgang eftir að ársuppgjöri lýk- ur, sem ég tel nú meira forms- GREINAR OG VIÐTÖL atriði, þar sem aðrir geta veitt afslætti við kaup. Sum sam- vinnufélögin hafa einnig gert það að einhverju marki eins og t. d. KRON. VERÐBÓLGAN ER ÞRÁNDUR í GÖTU. FV: Hver er skýringin á því, að einstök samvinnufélög hafa farið á hausinn að undanförnu, og hver eru helztu vandamál samvinnureksturs í landinu? EE: Það gerist af og til, að fyrirtæki verða gjaldþrota, og það á ekki sérstaklega við um kaupfélög, eins og sagan sýnir, síður en svo. Nú, það hafa þrjú kaupfélög orðið gjaldþrota síð- ustu árin, og af ýmsum ástæð- um. Það hefur verið erfitt að reka verzlun úti á landsbyggð- inni. Þá hafa komið til sérstak- ar ástæður í sumum tilfellum. Helzta vandamálið í rekstri samvinnufélaganna, er að mínu áliti sú verðbólguþróun, sem gengið hefur yfir s. 1. 25 ár, og sá óstöðugleiki í efnhagslífinu, sem fylgt hefur eða jafnvel verið undirrótin, Þetta hefur bitnað á samvinnufélögunum, eins og öðrum aðilum í við- skiptum og atvinnurekstri. Og ég tel að þetta sé það, sem mestu hefur skipt. Það má benda á, í samhengi við þetta, að þróunin hefur orðið þannig, að mjög erfitt hefur verið að reka smásöluverzlun, sérstak- lega á smærri stöðum út um landið, ef veita á þá þjónustu, sem viðskiptamenn og félags- menn telja nauðsynlega. Það hefur verið ákaflega erfitt, mið- að við þær reglur sem nú gilda um þessi mál. Þá er það einnig sama vandamálið og í öðrum rekstri, að oft vantar tilfinnan- lega fjármagn, þar sem verð- bólgan hefur étið látlaust af því hvern bitann af öðrum og oft í stórum stíl, þegar mest hefur gengið á. Sjóðir, sem höfðu safnazt á mörgum árum, og áttu að vera til taks, hafa brunnið upp í þessari verð- bólgu. Þannig hefur verðbólg- an á ýmsan hátt valdið sífelld- um vanda í öllum rekstri, og að mínum dómi verið sá Þránd- ur í Götu, sem samvinnufélögin og annar rekstur hefur liðið mest fyrir.. FV: Hvaða umbætur eru mik- ilvægastar í samvinnurekstrin- um, og fara þær algerlega sam- an við hagsmuni annars at- vinnureksturs í landinu? EE: Þeir hagsmunir, sem varða sjálfan rekstrargrund- völlinn. hljóta að vera svipaðir hjá hinum ýmsu félagsformum. Þegar kemur að því að úthluta tekjuafgangi, skiljast leiðir hjá samvinnufélögunum og einka- rekstri. Þá má ekki gleymi því, að samvinnufélög eru ekki að- eins viðskiptastofnanir, heldur einnig félagsmannasamtök. Þeim ber skylda til þess, að taka tillit til félagsmanna. En oft eru það sömu vandamálin, sem við er að stríða hjá sam- vinnufélögunum og einkafyrir- tækjum.. Fyrir utan það að ná tökum á efnahagsþróuninni, sem er auðvitað hagsmunamál allrar þjóðarinnar, tel ég mikilvægast fyrir okkur og það sem við get- um sjálfir helzt ráðið við á eig- in spýtur, að auka hvers konar hagræðingu, skipulag og tækni, en að þessu hefur verið unnið hjá okkur undanfarin ár. Vil ég minna sérstaklega á að við höfum í vaxandi mæli notfært okkur rafreikna við skýrslu- gerð og bókhald, en þar er um að ræða viss grundvallaratriði til aukinnar 'hagkvæmni og stjórnunar á rekstrinum. Fleiri og fleiri kaupfélög notfæra sér Aðrar höfuðstöðvar SÍS í Árm úla i Reykjavík. Fiskverksmiðjan Ilarrisburg í Bandaríkjunum.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.