Frjáls verslun - 01.03.1971, Side 59
FRJÁLS VERZLUN NR .3 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
57
hlutverki og mikilvægi kaup-
stefnunnar. Manni gremst, þeg-
ar af 200 viðskiptavinum fram-
leiðanda, aðeins fjórðungur
kemur til að skoða kaupstefnu
sem þessa, en þetta á eftir að
lagast með tímanum. Það má
kannski einnig segja það um
kaupstefnur að þær verða til
þess, að maður fer síður á staði
úti á landi, sem er dálítið
slæmt, því að nauðsynlegt er
að halda sambandi við við-
skiptavinina. Ég fór t. d. hér
áður fyrr alltaf hringferð um
landið vor og haust, en hef
ekki getað komið því í verk
sl. tvö ár og þykir það miður.
FV: Hvað um starf sölu-
mannadeildarinnar?
KH: Hún hefur unnið mikið
og jákvætt starf og á eftir að
gegna æ mikilvægara hlutverki
í sambandi við sölumennsku.
Námskeiðin og fundirnir þjóna
góðum tilgangi og hafa leitt
margt gott af sér og ég tel, að
það sé nauðsynlegt fyrir alla
sölumenn að notfæra sér þau
tækifseri, sem deildin býður
uppá. í framtíðinni munum við
beita okkur fyrir samningum
og áframhaldandi menntun fé-
lagsmanna og ég held t. d. að
það verði nauðsynlegt að end-
urtaka námskeiðið, sem nú
stendur yfir í sölutækni, að ári.
FV: Hver er munurinn á
starfi sölumanns, sem starfar
við heildsölu og þess, sem
starfar fyrir framleiðanda?
KH: Hann er mikill. Sölu-
maður hjá heildsölu, sem sel-
ur út af lager, kemur til sinna
starfa og getur selt beint af
lagernum. Sölumaður hjá fram-
leiðanda er aftur á móti meira
og minna í tengslum við fram-
leiðsluna og talsverður tími
hans fer í ýmis störf í sam-
bandi við hana. Sölumaðurinn
er fulltrúi fyrirtækisins gagn-
vart viðskiptavinum og einnig
tengiliður milli kaupmannanna
og framleiðanda. Einnig hlýtur
það, sem hann kynnist í sam-
bandi við starf sitt, að hafa
áhrif á framleiðsluna og inn-
kaup til hennar.
FV: Að lokum.
KH: Ég held, að kaupstefnur
séu framleiðendum hvatning til
að vanda meira til framleiðsl-
unnar og það er mjög mikil-
vægt.
TIL ALLRA ÁTTA
LOFTLEIBIR