Frjáls verslun - 01.03.1971, Qupperneq 67
FRJÁLS VERZLUN NR .3 1971
65
LIVI HEIMA OG GEIMA
í réttinum.
Maður nokkur mætti í réttinum með glóðarauga og vafið höf-
uð.
Dómarinn: Eruð þér giftur?
Maðurinn: Nei, ég datt bara í hálkunni.
Ég lýsi yfir .. .
í vikublaðinu Suðurnesjatíðindum, sem gefið er út í Keflavík,
var eftirfarandi þann 5. marz sl.:
„Munnhörpusnillingurinn Guðmundur Snæland kom að máli
við blaðið í gær, og sagði okkur, að nu væri hann að „minnka
að smakka það“, og hefði honum verið gefinn sparibaukur til
að safna í.
YFIRLÝSING.
Keflavík, 3. marz 1971.
Ég undirritaður, lofa Ellert Eiríkssyni, mínum góða verkstjóra,
að standa mína plikt í 5 tíma uppi í skemmu, laus við allt áfengi,
þó erfitt sé að halda hreinu þarna í skemmunni, þar sem menn
liggja undir bílum og velta sér síðan um gólfið upp í vaskana.
Eg vil leggja á mig hvað sem ég get til þess að okkur Ellert
megi semja sem bezt, og hann, sem hefur verið verkstjóri minn
í undanfarin 10 ár í blíðu og stríðu, á það skilið af mér, og þar
með Ingi'þór, Gunnar, Kalli og nýi Kalli.
Og síðast og ekki sízt vil ég færa lögreglunni í Keflavík þakk-
ir fyrir margan kaffisopann á lögregluvarðstofunni.
Virðingarfyllst, Guðmundur Snæland.“
Kvenfólk . . . Já . .
Svo við vendum nú okkar kvæði í kross, sagði blaðamaðurinn
við stærðfræðiprófessorinn í afmælisviðtalinu, hver er skoðun
yðar á kvenfólki?
Ha, kvenfólki. . . jú, já, er það ekki einmitt kvenfólk, sem fer
aftur á bak, þegar maður dansar?
„Woodstock“ um. páskana.
Páskakvikmyndin í Austur-
bæjarbíói í Reykjavík verður
WB stórmyndin ,,Woodstock“,
sem framleidd var undir stjórn
Michael Wadleigh. — Á mynd-
inni er atriði úr „Woodstock“.
TAFLA ER SÝNIR SKYLDLEIKA VÍNS DG MATAR
MATUR MOSELVIN RAUTT BORDEAUX HVlTT BORDEAUX RAUTT BURGUNDAR HVlTT BURGUNDAR KAMPAVlN RlNARVlN ELSASS-VlN
OSTRUR BERNK ASTELER GRAVES CHABLIS NATÚRAL OPPENHEIMER RIESLING
FORRÉTTIR MOSELBLOMCHEN SAUTERNES LOUPIAC GRAVES CHABLIS MACON RODESHEIMER RIESUNG
FISKUR SKELFISKUR BERNKASTELER SAUTERNES POUILLY FUISSE EXTRA DRY LIEBFR AUMILCH TRAMINER RIESLING
FUGLAKIOT KVlTT KJÖT GRAVES LE VALLON MEDOC MERCUREY MOLIN-A-VENT SEC (Dry)
STEIKUR RAUTT KIOT REYKT SVINAKIÖT SAINT EMILION POMEROL GEISWEILER MOLIN-A-VENT CHATEAUNEUF- DU-PAPE
OSTUR SAINT EMILION GEISV EJT.FJl DOUX (Swoot)
SÆTIR RÉTTIR DESERT SAUTERNES DEMI-SEC
HITASTIG VINA TIL NEYZLU KALT STOFUHITI FRAPPE (LsaS) MilU 0° og 5°C. STOFUHTTI KALT VENJULEGA ISAÐ KALT 1 MJÖG KALT