Frjáls verslun - 01.01.1972, Page 12
Viðskiptalönd
Eru Kínverjarnir að koma?
Vaxandi viðskipti við Kínverja
Stiórnmálasamband íslands
og Kína, sem staðfest var með
undirritun sendiherra landanna
í Kaupmannahöfn 8. desember
síðastliðinn, leiðir hugann að
því, hvort líkindi séu til, að
Kínverjar opni skrifstofu sendi-
fulltrúa eða viðskiptafulltrúa
hérlendis. Samkvæmt upplýs-
ingum Péturs Thorsteinssonar,
ráðuneytisstjóra í utanríkis-
ráðuneytinu, er hugsanlegt, að
fulltrúar kínversku stjórnarinn-
ar verði hér staðsettir með föstu
aðsetri en endanleg ákvörðun
um það verður tekin í Peking
fyrir marzlok.
Verlunarviðskipti íslands og
Kína hafa farið vaxandi og sam-
kvæmt nýjustu skýrslum Hag-
stofunnar nam innflutningur
frá Kína fyrstu 10 mánuði árs-
ins 1971 rúmum 14 milljónum
króna en rúmum 9 milljónum
á jafnlöngum tíma árið áður.
Aðallega er þarna um að ræða
vefnaðarvöru, ýmsar iðnaðar-
vörur og ávexti og grænmeti.
Obbann af þessum viðskiptum
annast innflutningsfyrirtækin
Hnitberg og ístorg í Reykjavík.
í samtali við Sigurvin Ossur-
arson, forstjóra Hnitbergs, kom
fram, að fyrirtæki hans hefur
flutt inn kínverska dúka,
hanzka og loðhúfur, sem hér
hafa verið mjög eftirsóttar.
Reykjavíkurlögreglan hefur t.d.
keypt nokkurt magn af húfun-
um fyrir vetrarbúning sinn. Af
öðrum vörutegundum, sem fyr-
irtæki Sigurvins hefur flutt inn
má nefna hunang, te, kakó, leik-
föng, hljóðfæri og ávexti.
Viðskiptasambönd Sigurvins
við Kína hófust árið 1959, er
hann var staddur í Moskvu og
notaði tækifærið til viðræðna
við viðskiptafulltrúa Kínverja
þar. Fimm árum síðar fór Sig-
urvin á vörusýningu í Shanghai
og festi þá kaup á kínverskum
vörum í stærri stíl.
Að sögn Sigurvins eru ýmsir
örðugleikar í viðskiptum við
Kína. Kínverjar hafa ekki dreif-
ingarmiðstöð í Evrópu heldur
verður að flytja pantanir alla
leið að austan. Aðalástæðan er
sú, að vörumagnið sem Kínverj-
Kínverskar vörur í hillum og d veggjum í verzluninni ístorg í
Reykjavík.
Japanskur kaupsýslumaður gerir viðskipti d vörusýningu í
Kanton.
8
FV 1 1972