Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1972, Qupperneq 37

Frjáls verslun - 01.01.1972, Qupperneq 37
hátt laða fólk að félaginu með trúmennsku í störfum og ljúfu viðmóti? Allt er þetta „mikið rannsóknarefni11, og áreiðan- lega mjög freistandi uppistaða í grein um kynningarmál, þó að ekki verði rætt að sinni. í bókhaldi félagsins er þessi starfsemi afmörkuð við það fé, sem beinlínis er greitt fyrir keyptar auglýsingar, útgáfu kynningarrita eða kaup á þeim, gerð fræðslumynda, kostnað við móttöku þeirra gesta, sem boðið er til þess að þeir geti kynnzt starfsemi félagsins af eigin raun og borið henni von- andi gott vitni, svo að nefndar séu helztu greinarnar á þess- um meiði. 120 MILLJÓNIR 1971 Um það er spurt, hve miklu fé sé varið til þessa árlega. Það er dálítið breytilegt, en þó jafnan miðað við vissan hundr- aðshluta áætlaðra tekna. Mér þykir sennilegt, að um það leyti, sem reikningsskil síðast liðins árs verða Ijós, þá reyn- ist þessi fjárhæð hafa orðið hjá Loftleiðum einhvers staðar í námunda við 120 milljónir króna, og er sú tala sambæri- leg við þær hlutfallstölur, sem önnur flugfélög verja í þessu skyni. Þessi tala er breytileg, mið- að við sölusvæði. Þar sem fé- iagið er orðið gamalgróið, er hundraðstalan tiltölulega lág, en há, þar sem reynt er að afla nýrra markaða, eða róttæk breyting verður á samkeppnis- aðstöðunni, og er þar nærtæk- ast og augljósast að minna á þotuferðirnar til og frá Skand- inavíu og Bretlandi. Vitanlega eru ákvarðanir um fjárhæðir, sem veittar eru til kynningarmála á hinum ýmsu sölusvæðum teknar í Reykjavík, og þar er einnig ákveðið, hve miklu sé hyggi- legt að verja til þess, sem þeim á að verða að sameiginlegum notum, t. d. fræðslumynda og upplýsingarita, sem dreift er til þeirra allra. í Reykjavík er einnig reynt að samræma gerð auglýsinga, og efla um þær samstarf milli stöðvanna, en eftir að Reykjavík sleppir, tekur Frankfurtskrifstofan við, sem er tengiliður milli skrif- stofa Loftleiða og umboðs- manna í Evrópu, Asíu og Afríku, og skrifstofan í New York, sem hefur yfirstjórn allra sölu- og kynningarmála vestan hafs. Hér í Reykjavík er yfirstjórn þessara mála skipt milli sölu- og kynningardeilda, sem starfa vitanlega undir handleiðslu félagsstjórnarinn- ar. ÞÁTTUR FORST.TÓRA SÖLUDEILDANNA Sú hefur orðið skipan mála, að eftir að hér sleppir taum- um, fá forstjórar hinna ýmsu söludeilda tiltölulega frjálsar hendur um auglýsinga- og kynningarmál. Reynslan hefur sannað, að þeim er betur en öðrum til þess treystandi að velja sér góða aðstoðarmenn við gerð auglýsinga, ákvarða hvar hyggilegast sé að birta þær, meta réttilega, hvaða fréttamenn kunni að reynast Loftleiðum velviljaðir, í stuttu máli, að sjá betur en við, hvernig hyggilegast sé að verja því fé, sem ætlað er til kynn- ingarstarfsemi á því sölusvæði, sem þeim er ætlað að tryggja, að verði Loftleiðum arðvæn- iegt. Nú má vitanlega taka til við að segja eitthvað frá einhverj- um einstökum þáttum, gera t. d. grein fyrir öllum þeim aragrúa bæklinga, sem annað hvort eru að öllu levti gefnir út á kostnað Loftleiða, og að frumkvæði félagsins, eða þeim, sem félagið kostar að ein- hverjum hluta. Á sama hátt má einnig reyna að skýra eitt- hvað, er varðar sjónvarpsaug- lýsingar, undirbúningsvinnu við auglýsingar í blöðum og tímaritum, eða eitthvað annað það, sem reynt er við að glíma. En þar sem ég var beð- inn að minnast eitthvað á ís- landskynningu í sambandi við starfsemi Loftleiða, þá er ef til vill rétt að einskorða sig ein- göngu við það aö' þessu sinni, og reyna þá að hafa hliðsjón Loítleiðir leggjct mikla áherzlu á að hvetja farþega sína til að dveljast nokkra daga á Islandi á leið sinni yfir hafið. Frá 1963 er tala þessara gesta á Islandi orðin 75000. FV 1 1972
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.