Frjáls verslun - 01.01.1972, Síða 44
Stálfiskibátur, sem Bátalón í Hafnarfirði hefur smíðað fyrir
Indverja.
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að beina þessum skipakaupum
til innlendra skipasmíðastöðva,
ef þær bjóða sambærileg kjör.
Yrði það framkvæmt með þeim
hætti, að stjórnvöld neituðu
kaupendum um leyfi eða fyrir-
greiðslu til smíði fleiri þess-
ara skuttogara erlendis, þar til
innlendum skipasmíðastöðvum
hefðu verið tryggð verkefni
til rýmilegs tíma. Eigi þetta
ekki aðeins að gilda um skut-
togara, heldur líka aðrar
stærðir fiskiskipa, sem henta
til smíða hérlendis.
Að dómi nefndarinnar á það
að vera meginhlutverk ís-
lenzku skipasmíðastöðvanna að
annast smíði minni fiskiskip-
anna auk viðgerða, en hún tel-
ur jafnframt nauðsynlegt, að
þær íslenzkar skipasmíðastöðv-
ar, sem færar eru til þess, fái
stærri verkefni, t. d. 400-500
brúttórúmlesta skuttogara, svo
að þær geti þróazt eðlilega í
smíði sem flestra algengra
stærða og gerða íslenzkra fiski-
skipa.
Það munu vera 3-4 skipa-
smíðastöðvar á íslandi, sem
geta smíðað skuttogara af
stærðinni 400-500 brl, þ.e.a.s.
Slippstöðin á Akureyri, Stál-
vík í Garðahreppi, Þorgeir og
Ellert á Akranesi og Marsellíus
Bernharðsson á ísafirði. Samn-
ingur er þegar til við Slipp-
stöðina á Akureyri um smíði á
tveimur skuttogurum í öðrum
stærðarflokki, eða um 1000
brl.
MEÐALALDUR FISKI-
SKIPA 16,1 ÁR
Við athugun á meðalaldri ís-
lenzkra fiskiskipa komst
nefndin að þeirri niðurstöðu,
að árið 1961 var meðalaldur-
inn á þilfarsskipum 19,3 ár, en
16,1 ár 1971. í ljós kemur, að
nýjustu skipin eru í stærðar-
flokkunum 200-500 brl. og eru
þau 99 talsins, en næstyngst
eru skip 100-200 brl. Þau eru
104 talsins samkvæmt skrám
1971.
Þá var kannaður meðalaldur
skipanna miðað við brúttó-
rúmlestir til að fá gleggri hug-
mynd um þörfina fyrir verð-
mætaendurnýjun. Sá meðal-
aldur reynist vera 11 ár, en
þá eru togarar yfir 500 brl.
ekki taldir með.
Þegar endurnýjun fiskiskip-
anna er höfð í huga gerir
nefndin ráð fyrir, að meðal-
aldur aukist ekki frá 11 árum,
þ.e.a.s. að meðalhámarksaldur
yrði 22 ár. Hins vegar er bent
á, að ekki sé víst, að skipting
skipanna í stærðarflokka hald-
ist óbreytt og einnig, að gera
megi ráð fyrir, að heildarstærð
flotans aukist með fleiri og
stærri skipum. Endurnýjunin
færi fram með þeim hætti, að
smíðuð væru skip af þeim gerð-
um og stærðum, sem bezt
þættu henta hverju sinni
vegna áhrifa frá breyttri veiði-
tækni, breyttum veiðiaðferð-
um og breyttum ákvæðum um
veiðiheimildir á ákveðnum
svæðum.
Endurnýjunarþörfin er áætl-
uð 3800 brl. á ári.
HVAÐ RÆÐUR
ÁKVÖRÐUNUM UM STÆRD
SKIPA?
í skýrslu Fiskiskipasmíða-
nefndar er að finna fróðlegar
upplýsingar um það, hvernig
lagaákvæði og aðrar reglur
hafa áhrif á stærð skipastóls-
ins;
Áhugi útgerðarmanna á stærð-
inni 100-105 brl. hefur verið
áberandi undanfarin ár, og
virðist, sem hann muni hald-
ast. Lægri mörkin, 100 brl.,
miðast við frjálsa tryggingu
skipa yfir þeirri stærð, en
skyldutryggingu hjá Sam-
ábyrgð Islands á fiskiskipum
fyrir minni skip. Efri mörkin,
undir 105 brl., eru vegna
ákvæða um ákveðin veiði-
svæði fyrir þessa stærð skipa.
Þessi stærðarflokkur, 100-105
brl., er því til kominn fyrst
og fremst vegna ákvæða í lög-
um.
Nefndin telur, að yrðu þessi
efri mörk hækkuð að því er
varðar heimild til sömu veiði-
svæða, þá væri ekki efi á því,
að áhugi útgerðarmanna myndi
beinast að því að fá skip af
stærð rétt neðan við ný mörk.
Mörg skip hafa nú þegar ver-
ið byggð af þessari stærð, sem
getur talizt hentug til veiða á
svæðum næst landi, og er gert
ráð fyrir áframhaldandi áhuga
á skipum af þessari stærð.
Leyfi til dragnótaveiða á
ákveðnum svæðum fyrir skip
undir 45 brl. stuðla að öflun
skipa af stærðarflokknum 40-
45 brl.
Hinn mikli áhugi, sem vart
hefur orðið á tveggja þilfara
skuttogurum af stærðinni 400-
500 brl., er skýrður með því,
að efri stærðarmörkin, undir
500 lestum, ákvarðist vegna
ákvæða um stærð áhafnar, en
að nokkru líka vegna aukins
búnaðar, ef skipin verða yfir
500 brl.
SAMIÐ UM 37 SKUT-
TOGARA
Áhugi útgerðarmanna er nú
mestur á smíði skuttogara, 400-
500 brl. Tögarar þessir eru all-
ir um 46 metrar á lengd. Nú
þegar hefur verið samið um
erlendis, eða samningar undir-
búnir, um 27 togara af þess-
ari stærð auk 10 skuttogara
800-900 brl. eða 1000-1100 brl.
Samningar þessir hafa þó ekki
allir verið endanlega sam-
40
FV 1 1972