Frjáls verslun - 01.01.1972, Blaðsíða 49
Rætt við Gunnar Ragnars, framkv.st]. Slippstöðvarinnar
— Það háir Slippstöðinni
mjög, að engin ákveðin stefna
hefur verið tekin um uppbygg-
ingu flotans Það var byrjað hér
á fiskiskipum af ýmsum stærð-
um, síðan var ráðizt í byggingu
strandferðaskipanna, þar næst
teknir fyrir 100 tonna bátar og
nú er verið að byrja á 1000
tonna skuttogurum.
Þannig mælti Gunnaj' Ragn-
ars, forstjóri Slippstöðvarinnar
á Akureyri í viðtali við FV á
dögunum.
Sem kunnugt er hefur Slipp-
stöðin átt við fjárhagserfiðleika
að glima að undanförnu, en ný-
lega var ákveðið að auka hluta-
fé hennar upp í 83 milljónir
króna og eru ríkið og Akureyr-
arbær stærstu hluthafar.
LOSA SIG VIÐ
LAUSASKULDIR.
— Það er ætlunin, sagði
Gunnar, að nota þetta fjármagn
til að losa okkur við lausaskuld-
ir og ganga frá mannvirkjum
og afla nýrra tækja og verk-
færa. Við höfum því miður
horft upp á það, að 20 menn
hafa verið verklausir því að
ekki voru til verkfæri handa
þeim. Þau lágu á hafnarbakkan-
um. en fyrirtækið hafði ekki
fjármagn til að leysa þau út.
Ég vona, að nú sé endi bundinn
á slíka erfiðleika.
— Bent hefur verið á nauð-
syn þess, að stöðvarnar fái að
smíða skip í seríum. Eru horf-
ur á að svo verði?
— Vísir að þessu er fyrir
hendi en ekki meira. Það er um
það að ræða, að smíða 10 skip
sem virðast sams konar, en við
núverandi aðstæður er alveg
jafnlíklegt, að í þau færu vélar
af 10 mismunandi gerðum. Til
þess þarf sérteikningar og ég
tel, að slík dreifing verkefn-
anna sé óheppileg eins og í
ljós kom varðandi teikningar að
undirstöðum fyrir ljósavéi i
Esju, sem gerðar voru í Dan-
mörku.
Þá hafa skipstjórar, t.d. á
fiskiskipum, ákveðnar séróskir
um ýmsa tilhögun í brúnni og
staðsetningu tækja, sem taka
verður tillit til. Allt þetta rýrir
mjög tækifæri til raunverulegr-
ar seríusmíði.
ÓÆSKILEGAR
SKYNDIRÁÐSTAFANIR.
— Er líklegt, að þið eigið þess
kost á næstu árum að smíða
skuttogara í seríum?
— Nú er ákveðið, að við smíð-
um tvo 1000 tonna skuttogara.
Önnur verkefni hefur ekki ver-
ið samið um. í ársbyrjun 1970,
þegar smíði Esjunnar var að
Ijúka stóðum við uppi verkefna-
lausir. Þá vildum við smíða 500
tonna skuttogara á færibandi,
ef svo mætti segja, en það var
ekki hljómgrunnur fyrir því.
Þess vegna var byrjað á 100
tonna bátunum, samkvæmt
heimild til að smíða á lager.
Efni og vélar voru því pöntub
blint. En þegar okkur skorti fé
úr Fiskveiðasjóði var bent á
það, þrátt fyrir þessa heimild
til smíða án fyrirframgerðra
samninga, að kaupanda aðskip-
Systurskipin Esja og Hekla, stœrstu skip, sem smíðuð hafa verið
innanlands. Slippstöðin hlaut dýrmceta reynslu af þessum verk-
efnum.
Samstarf við þýzka skipa-
smíðastöð til athugunar
FV 1 1972
45